tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Mig langaði að koma upp undir þessu máli og langar að hefja mál mitt með nokkrum orðum um einbeitta baráttu Kolbrúnar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins, fyrir gjaldfrjálsum skólamáltíðum um langt árabil. Hún var kjörin borgarfulltrúi árið 2018 og endurkjörin 2022 en í þau sex ár sem hún hefur setið sem borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur hún barist ötullega fyrir hagsmunum barna. Má þar t.d. nefna baráttu hennar fyrir aukinni tómstundaþátttöku barna án tillits til efnahags þeirra, svo sem niðurgreiðslu íþrótta- og tómstundagjalda fyrir fátækar fjölskyldur, og baráttu hennar gegn einelti. Kolbrún hefur alltaf lagt mikla áherslu á það mál sem við ræðum hér og verður vonandi brátt að lögum, þ.e. að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar í grunnskólum landsins. Kolbrún lagði margsinnis fram tillögur þess efnis í borgarstjórn en ítrekað felldi meiri hluti borgarstjórnar tillögur hennar með þeim orðum að þær væru of kostnaðarsamar. Nú hefur tekist ákveðið samkomulag um sameiginlega kostnaðarþátttöku ríkis og sveitarfélaga til að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar og því ber að fagna. Ég tel að Kolbrún eigi heiður skilið fyrir baráttu sína fyrir þessu mikilvæga máli og án hennar er ég ekki viss um að við værum í þann mund að festa gjaldfrelsi skólamáltíða í lög.
Mig langar, með leyfi hæstv. forseta, að vitna aðeins í ræðu Kolbrúnar þar sem hún rökstuddi mál sitt fyrir borgarráði um af hverju hún teldi rétt að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar. Sagði Kolbrún þá, með leyfi forseta:
„Við vitum að það hafa ekki allir foreldrar ráð á að leyfa barni sínu að vera í mat í skólanum. Með því að gæta ekki að jafnræði er verið að brjóta ákvæði í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það hlýtur að vera vilji okkar allra að ekkert barn sé svangt í skólanum.“
Virðulegur forseti. Einnig vildi ég koma einu öðru atriði að. Við í Flokki fólksins hefðum helst viljað tekjutengja þetta með einhverjum hætti, hvort sem það er gert í gegnum skattkerfið eða hvaðeina, bara vegna þess að það liggur í hlutarins eðli að foreldrar sem hafa margar milljónir á mánuði þurfa alls ekki að fá neina aðstoð við að greiða skólamáltíðir barna sinna. Ég hefði talið að það væri hægt, hefði þetta verið skoðað nánar í ráðuneytinu, að tryggja slíka útfærslu með einhverjum hætti án þess að það birtist fyrir opnum tjöldum hvaða börn eiga fátæka foreldra og hver eigi ríka foreldra. Það á ekki að vera neitt flókið ef þeir sérfræðingar sem við höfum aðgang að hér á þingi og í ráðuneytinu tækju sér smátíma í að hugsa um lausn á þessu álitamáli.
Það er gleðilegt að við séum í þann mund að stíga þetta mikilvæga skref í þágu barna. Það á ekkert barn að upplifa hungur. Ég vil þakka Kolbrúnu Baldursdóttur fyrir hennar ötulu baráttu í þágu barna og óska okkur öllum til hamingju með þetta góða mál sem sannarlega er skref í átt til aukins jöfnuðar í okkar góða en því miður rándýra landi, þar sem umtalsverður ójöfnuður er því miður enn staðreynd.