154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1114. mál
[20:21]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Það er kannski rétt að byrja á að nefna að 1. minni hluti fagnar að sjálfsögðu því að til standi að stíga þetta mikilvæga skref að veita grunnskólabörnum landsins gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Þetta skiptir máli til að vinna gegn ójöfnuði í samfélaginu til að tryggja börnum það atlæti sem þau eiga rétt til og þau geti notið alls þess sem fylgir því að fara vel nærð í gegnum skóladaginn, bæði líkamleg og andleg áhrif eru jákvæð þannig að þetta er gott skref. En það er hins vegar umhugsunarefni að frumkvæðið að þessu komi ekki frá pólitíkinni, að það séu ekki ráðherrarnir hér á bekkjunum sem hafi í upphafi þessa kjörtímabils einsett sér að ná þessu fram, það séu ekki stjórnarflokkarnir sem hafi barist með kjafti og klóm fyrir þessu í stjórnarmyndunarviðræðum heldur hafi verkalýðshreyfingin náð að knýja þetta fram í tengslum við gerð kjarasamninga í vor.

Við eigum auðvitað mörg af okkar mikilvægustu framfaraskrefum verkalýðshreyfingunni að þakka. Hún hefur oftar en ekki náð að knýja pólitíkina til að stíga skref sem stjórnmálaflokkarnir hafa ekki náð saman um en í krafti fjöldasamstöðunnar sem birtist í verkalýðshreyfingunni þá hefur sú niðurstaða náðst eins og er í þessu dæmi. Þetta er hins vegar ekki nógu skemmtilegt. Mér þætti fara betur á því að stjórnmálin næðu oftar utan um svona víðtæk álitamál, svona stórar áskoranir, svona mikilvæg mál upp á eigin rammleik án þess að þurfi að kalla til verkó til að slá í klárinn. En hér erum við með þetta frumvarp í höndunum og flest gott um það að segja. Mig langar þó að nefna, eins og komið er inn á í nefndaráliti 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar að sveitarfélögin lýsa ákveðnum áhyggjum, áhyggjur sem mætti segja að litist af því að sporin hræða. Sveitarfélögin þekkja allt of vel að þegar ríkið felur þeim eitthvert verkefni þá er allt of algengt að fjármagn fylgir ekki til að dekka þau verkefni. Enn algengara er að fjármagnið rýrni síðan eftir því sem á líður vegna þess að verðlagsuppfærslur í fjárlögum halda ekki í við raunverulegan kostnað þeirrar þjónustu sem verið er að veita. Þannig var bent á það í umsögnum Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga t.d. að miðað við hefðbundna verðlagsuppfærslu fjárlaga, sem er sjaldnast jafn mikil og verðbólga í landinu er, þá væri strax á fyrsta ári komin skekkja í þeirri kostnaðarskiptingu sem lagt er upp með í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga.

Hitt áhyggjuefnið, sem við reyndar fjöllum ekki um í þessu nefndaráliti en mig langar bara að nefna vegna þess að mér finnst skipta máli að það sé komið aðeins inn á það, er að hér er lagt upp með tímabundið úrræði en sveitarfélögin benda, að ég tel, nokkuð réttilega á að þetta sé tímabundið úrræði sem verður mjög erfitt annað en að viðhalda til frambúðar vegna þess að almenningur mun auðvitað komast á bragðið, sjá hversu mikilvægt skref þetta er og fólk mun vilja festa þetta í sessi til frambúðar. Þá eru sveitarfélögin ekkert endilega í stakk búin til þess að fjármagna það varanlega og þetta er eitthvað sem þarf að útfæra mjög vel í samtali ríkis og sveitarfélaga á næstu árum að sjá hvernig hægt sé að viðhalda þessu til frambúðar án þess þó að það leiði til einhverrar ósanngjarnrar kostnaðarskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga sem snýst í grunninn um það að það er ríkið sem heldur um innflæðið í budduna hjá sveitarfélögum. Sveitarfélögin hafa bara það til ráðstöfunar sem ríkið er búið að ákveða með útfærslu á ýmsum tekjumöguleikum sveitarfélaganna þannig að ef ríki og sveitarfélög komast að því að þetta sé eitthvað sem eigi að festa í sessi varanlega, gjaldfrjálsar skólamáltíðir, þá er alveg eðlilegt að því fylgi einhvers konar varanleg aðlögun, annaðhvort jöfnunarsjóðs eða einhvers annars kerfis til að sveitarfélögin geti staðið straum af kostnaðinum sem fylgir þessu.

Sú breyting sem er lögð til í þessu nefndaráliti snýst hins vegar um kostnaðarskiptinguna á þessu tímabili sem samið hefur verið um að ríkið fjármagni 75% af kostnaðinum. Það var komið inn á það í framsögu hv. framsögumanns meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að þar er fjallað um þessar áhyggjur, að sveitarfélögin hafa áhyggjur af því að upphæðin standi ekki í þessu frumvarpi og hvað þá að kostnaðarskiptingin sé fest í lög hér heldur segir meiri hlutinn að þetta verði bara að afgreiða í fjárlögum hvers árs. Þar vill 1. minni hluti ganga lengra. Við verðum að sýna þessum áhyggjum sveitarfélaganna virðingu. Við verðum að skilja áhyggjur þeirra af því að þeir muni bera skarðan hlut frá borði. Þess vegna er lögð til sú breytingartillaga að í blábyrjun greinar frumvarpsins sem fjallar um þetta úrræði bætist við nýr málsliður, svohljóðandi:

„Ráðherra skal á tímabilinu við afgreiðslu fjárlaga hvers árs leggja til upphæð í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 7. mars 2024 þar sem miða skal við að ríkið fjármagni 75% af kostnaði sveitarfélaganna við aðgerðina.“

Hér er ekki lagt til að festa neitt í lög sem ríkið hefur ekki nú þegar skuldbundið sig til að framfylgja. Hér er bara verið að segja að það skuli staðið við gerða samninga og hinn kaldi sannleikur er bara sá, forseti, að svona ítrekun þarf að vera til staðar. Við þekkjum það úr alls konar verkefnum. Við þekkjum það t.d. úr NPA-þjónustunni. Það er ekkert sjálfgefið að ríkið standi við samninga af þessu tagi í fjárlögum. Þess vegna þurfum við í þeim sérlögum þar sem er verið að fjalla um úrræði á borð við gjaldfrjálsar skólamáltíðir að gulltryggja að ríkið geri það sem það segist ætla að gera þannig að við stöndum ekki í einhverju karpi um kostnaðarhlutdeild milli ríkis og sveitarfélaga sem er búið að semja um þegar samtalið á miklu frekar að snúast um: Hvernig getum við gert þetta varanlegt til frambúðar? Með því að taka undir tillögu minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar þá gæti þingið bara ýtt þeirri deilu úr vegi þannig að ríki og sveitarfélög geti sest niður í framhaldinu og rætt á næstu árum hvernig hægt sé að, ekki ýta þessu skipi úr vör, heldur koma því á almennilega siglingum þannig að það stefni til bjartrar framtíðar.