tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Hér er verið að ræða mál um skólamáltíðir. Það er dálítið athyglisvert að horfa á það mál aðeins í baksýnisspegli og aðeins víðar um heiminn. Þann 12. desember 2006 gaf ríkisstjórn Íslands út yfirlýsingu um framlag til matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna sem heitir á ensku, með leyfi forseta, „World Food Program“. Íslenska ríkið ákvað á þeim tíma að gefa sem samsvaraði 3,2 milljónum dollara sem mér skilst að sé að núgildi um 5 milljónum dollara eða allt að 700 millj. kr. í framlag vegna skólamáltíða. Já, gjöfin sem þarna var gefin jafngilti því að hvert grunnskólabarn á Íslandi myndi sjá einu barni í Afríku fyrir daglegri máltíð í svokallaðri skólamáltíðaáætlun matvælaáætlunar. Þessar skólamáltíðir voru sem sagt gefnar til Malaví og Úganda sem var nægilegt til þess að 45.000 afrísk börn fengu næringu um leið og þau nutu grundvallarmenntunar, en akkúrat á þessum tíma voru 45.000 íslensk börn grunnskólanemar.
Það er mjög áhugavert að horfa til þessara verkefna, sem gaman er að segja frá að hafa haldið áfram nær óslitið síðan þá. Bara nú á dögunum var tilkynnt um endurnýjun á slíku verkefni í Úganda. Það er nefnilega talið að um 400 milljónir barna í heiminum þekki af eigin raun að leggjast til svefns hungruð. Hungur og ýmislegt annað tengt fátækt orsakar það að börn sæki alls ekki skóla. Það hefur sýnt sig í þróunarríkjunum að það að bjóða upp á skólamáltíðir ýtir undir skólasókn, sérstaklega hjá stúlkum. Því er mikilvægt, þó svo að við séum eitt af þeim löndum þar sem við búum við hvað best lífsskilyrði í heiminum, að við áttum okkur á því að hér eru börn sem búa við fátækt, því miður allt of mörg börn sem búa við fátækt. Fátæktin getur oft einmitt falist í því að það sé ekki mikið til á heimilinu til þess að gefa börnum nesti eða til þess að greiða fyrir máltíðir í skólanum. Það er ánægjulegt að sjá að í þessu frumvarpi er einmitt verið, getum við kannski sagt, að halda áfram með það verkefni sem byrjaði 2006, nema nú erum við að gera það hér heima á Íslandi. Við erum að tryggja það að jafnvel í okkar góða umhverfi setjum við til hliðar fjármagn til að tryggja að öll börn fái að borða í skólanum, óháð efnahag þeirra og foreldra þeirra. Það er hægt að deila um hvernig þetta er sett upp og hvort þessu hafi verið neytt upp á sveitarfélögin og allt mögulegt í kringum það, en fyrir mér skiptir mestu að hér er verið að nýta reynslu af sams konar verkefnum frá þróunarlöndunum til þess að auka jöfnuð og draga úr fátækt. Það á alltaf að koma fyrst. Það finnst mér skipta meira máli heldur en akkúrat formið eða akkúrat hvernig þetta á að vera. Ég er viss um að það eiga eftir að koma upp alls konar hnökrar í þessu en þá lögum við þá bara, vegna þess að það sem skiptir máli eru börn.