skák.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um skák. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um skák og styrki til stórmeistara í stað laga um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990, og laga um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, sem tóku gildi árið 1991. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Þá barst einnig minnisblað frá mennta- og barnamálaráðuneytið og eru gögn málsins aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega nokkur atriði:
Í fyrsta lagi ber að nefna að í umsögn Skáksambands Íslands er tekið undir þau sjónarmið sem lágu fyrir við gerð frumvarpsins. Þörf var á endurskoðun og uppfærslu á umgjörð og styrkjakerfi vegna stórmeistara og er með frumvarpi þessu lagt til breytt fyrirkomulag hvað varðar styrki til þeirra sem náð hafa miklum árangri í skák og þeirra sem stefna á frekari velgengni á alþjóðavísu. Þá er í frumvarpinu einnig fjallað um réttindi og skyldur stórmeistara og efnilegs skákfólks, vinnuframlag þeirra og launagreiðslur úr ríkissjóði. Í umsögn Skáksambands Íslands kemur fram að sambandið mæli með því að frumvarp þetta verði samþykkt óbreytt eða lítið breytt og tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið.
Þá bendir meiri hlutinn í öðru lagi á blómlegt starf í kringum fleiri hugaríþróttir sem Íslendingar hafa einnig náð frábærum árangri í. Dæmi um slíka íþrótt er bridds en Ísland á marga afreksmenn í þeirri íþrótt og hefur briddshreyfingin hér á landi viðhaldið kröftugu starfi sem fjölmargir Íslendingar sækja. Í umsögn Bridgesambands Íslands kemur fram að talið sé að virkir iðkendur bridds hér á landi séu um 20.000. Íslendingar hafa náð mikilli velgengni í bridds á alþjóðavísu en sem dæmi um það má nefna sigur Íslands í heimsmeistarakeppni í bridds árið 1991, Bermúdaskálinni. Ásamt þessu hefur briddshreyfingin lagt aukna áherslu á tómstundastarf í þágu barna og ungmenna á sviði bridds. Í umsögn Bridgesambands Íslands er einnig óskað eftir því að komið verði á laggirnar afrekssjóði fyrir bridds á Íslandi, þ.e. fyrir afreksfólk og efnalega spilara hér á landi sem gætu sótt um stuðning sambærilegan þeim sem fjallað er um í frumvarpi þessu. Meiri hlutinn tekur undir umsögn Bridgesambands Íslands og beinir því til mennta- og barnamálaráðherra að setja á fót starfshóp sem vinni tillögur að kerfi til að styðja við briddsspilara.
Þá áréttar meiri hlutinn í þriðja lagi mikilvægi skákkennslu. Skákfærni er, eins og hver önnur íþrótt, að mestu leyti lærður hæfileiki og því nauðsynlegt að í boði sé þjálfun og kennsla frá reynslumeira fólki sem miðlar af reynslu sinni og þekkingu til næstu kynslóða. Meiri hlutinn fagnar því að áherslur á rannsóknir og kennslu verði teknar til skoðunar í mennta- og barnamálaráðuneytið í tengslum við vinnu ráðuneytisins við reglugerð um afrekssjóð í skák, verði þetta frumvarp að lögum.
Að lokum tekur meiri hlutinn undir sjónarmið frumvarpsins sem fram koma í greinargerð um mikilvægi þess að styrkja efnilegt skákfólk og stuðla á þann hátt að því að það nái frekari árangri í íþróttinni. Núverandi fyrirkomulag einskorðar styrkveitingar við þá sem orðnir eru stórmeistarar en þeir sem eru langt komnir á þeirri vegferð geta ekki hlotið styrk. Með stuðningi við ungt og efnilegt skákfólk samhliða stuðningi við skákfólk sem náð hefur árangri á alþjóðavísu er hægt að stuðla að frekari nýliðun og framþróun starfsins hér á landi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt og undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Bergþór Ólason, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Eyjólfur Ármannsson, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.
Virðulegi forseti. Þetta er jákvætt mál og við eigum að styðja vel við hugaríþróttir til framtíðar, líkt og við höfum gert hingað til.