listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um listamannalaun. Frumvarpið felur í sér fyrstu efnislegu endurskoðun laga um listamannalaun frá setningu þeirra árið 2009. Með aukinni fólksfjölgun, launaþróunar og áherslna í listsköpun er þörf á endurskoðun laganna. Breytingarnar fela í sér fjölgun launasjóða listamanna sem starfslaun eru veitt úr og fjölgun árlegra úthlutunarmánaða.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín umsagnir og gesti en gögnin eru aðgengileg á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um dreifingu úthlutunarmánaða á milli mismunandi starfslaunasjóða en fram komu athugasemdir við hana. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við mat á því hvernig mánuðum sem bætast við til úthlutunar skyldi dreift milli sjóða var litið til umfangs hvers sjóðs samkvæmt gildandi lögum, til tölfræði Rannís síðastliðin tíu ár um fjölda umsókna í hvern sjóð og árangurshlutfall umsókna miðað við bolmagn hvers sjóðs til að veita starfslaun.
Í frumvarpinu er lagt til að fjöldi úthlutunarmánaða launasjóðs hönnuða aukist mest, eða tvöfaldist, en að úthlutunarmánuðum launasjóðs rithöfunda fjölgi minnst, eða um það bil fjórðung. Meiri hlutinn leggur ekki til breytingar á dreifingu úthlutunarmánaða en telur þó rétt að beina því til ráðuneytisins að fylgjast með þróun nýs fyrirkomulags og meta reglulega hvort ástæða sé til frekari breytinga, m.a. varðandi dreifingu fjármagns milli sjóða. Meiri hlutinn telur jafnframt ástæðu til að það verði skoðað til lengri tíma hvort tilefni sé til að auka flæði á milli listgreina við úthlutun starfslauna í stað þess að formfesta launasjóði á grundvelli þess að listamenn geti skilgreint sig í tilgreinda hópa listamanna, m.a. með vísun til einföldunar á kerfinu og lækkunar á umsýslukostnaði.
Þá fjallaði nefndin um fjárhæð starfslauna en í umsögnum um málið var m.a. fjallað um hana. Um fjárhæðina fer samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laganna. Fjárhæðin skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála. Í minnisblaði menningar- og viðskiptaráðuneytis kemur fram að launavísitalan hafi hækkað umfram hækkun mánaðarlegra fjárhæðar listamannalauna. Ráðuneytið hafi þó ákveðið að leggja frekar áherslu á fjölgun mánaðarlauna með frumvarpinu umfram hækkun launatölunnar til að auka fjölbreytni og tryggja fleiri listamönnum, á breiðari grunni, aðkomu að kerfinu.
Þá var einnig fjallað um það að þeir sem hljóti listamannalaun til fleiri mánaða en sex megi einungis sinna sem nemur 33% starfi samhliða töku launanna sem leiði til lágra tekna á starfslaunatímabilinu. Meiri hlutinn telur mikilvægt að menningar- og viðskiptaráðuneyti taki til skoðunar hvort tilefni sé til endurskoðunar á ákvæði reglugerðar um listamannalaun þar sem fullt starf er skilgreint sem 67% starf í skilningi laganna. Samkvæmt reglugerðinni skulu þeir sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur ekki gegna öðru starfi sem telst meira en þriðjungur úr stöðugildi meðan þeir fá greidd starfslaun. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að taka þessar ábendingar til nánari skoðunar við endurskoðun reglugerðarinnar með það að markmiði að auka sveigjanleika þegar kemur að skilyrðum um starfshlutfall samhliða töku starfslauna.
Virðulegi forseti. Í samræmi við kvikmyndastefnu stjórnvalda leggur frumvarpið til að mælt verði fyrir um nýjan launasjóð kvikmyndahöfunda en þar er vísað til leikstjóra og handritshöfunda. Ráðherra muni skipa nefnd sem fái það hlutverk að úthluta fé úr launasjóðnum. Fyrir nefndinni kom fram að frumvarpið tryggi ekki aðkomu heimildarmyndagerðarmanna að launasjóðnum. Eingöngu tvö félög kvikmyndahöfunda tilnefni aðila í úthlutunarnefnd. Þá sé tekið fram í frumvarpinu að sjóðurinn sé fyrir leikstjóra og handritshöfunda og að við þá upptalningu ætti að bæta: öðrum aðalhöfundum kvikmynda. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að frumvarpið eigi ekki að útiloka höfunda heimildarmynda að sjóðnum. Það sé þó mat ráðuneytisins að ekki sé tilefni til að fjölga í hópi þeirra sem tilnefna skulu í úthlutunarnefnd þar sem í því felist aukið flækjustig. Úthlutunarnefndir sérgreindra launasjóða starfa undir eftirliti stjórnar listamannalauna og skulu þær gæta að faglegum sjónarmiðum og jafnrétti í störfum sínum og starfa í samræmi við áherslur stjórnar hverju sinni. Hvað varðar ábendingu þess efnis að tilgreina ætti aðra aðalhöfunda kvikmynda til viðbótar við leikstjóra og handritshöfunda, þá bendir ráðuneytið á að í lagagreininni verði aðeins minnst á kvikmyndahöfunda en ekki er tilefni til að skilgreina það hugtak þröngt. Meiri hlutinn tekur undir þetta og áréttar að með kvikmyndahöfundum sé vísað til leikstjóra og handritshöfunda auk þess sem aðrir aðalhöfundar kvikmynda geta fallið þar undir, þar á meðal höfundar heimildarmynda sem ekki er ætlunin að útiloka frá aðgengi að sjóðnum.
Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót nýjum sjóði fyrir listamenn 67 ára og eldri sem fái heitið Vegsemd. Vegsemd verði sérstakur, þverfaglegur sjóður fyrir eldri listamenn sem hafa varið starfsævi sinni til listsköpunar. Meiri hlutinn tekur undir með að Vegsemd verði góð viðbót en þó eðlisólíkur heiðurslaunum listamanna sem Alþingi veitir árlega og er ætlað að heiðra þá listamenn sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði.
Nefndin fjallaði jafnframt um fjármögnun frumvarpsins. Frumvarpið felur í sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð vegna fjölgunar úthlutunarmánaða starfslauna listamanna og fjölgun sjóða hefur í för með sér aukinn umsýslukostnað. Þegar hið nýja fyrirkomulag verður að fullu komið til framkvæmda munu breytingarnar fela í sér um 600 millj. kr. árlegan kostnaðarauka á verðlagi fjárlaga fyrir árið 2024 en breytingarnar munu taka gildi í skrefum næstu fjögur árin.
Í minnisblaði menningar- og viðskiptaráðuneytis kemur fram að fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 gerir ekki ráð fyrir þeim heildarkostnaði sem felst í frumvarpinu þegar það verður að fullu komið til framkvæmda 2028. Til að koma móts við fjármögnun frumvarpsins leggur ráðuneytið til að fallið verði frá stofnun sérstaks nýliðasjóðs. Breytingin felur í sér að heildarfjöldi starfslaunamánaða verður 2.490 frá og með árinu 2028 í stað 2.670. Við það minnkar kostnaðaraukinn úr 600 millj. kr. á ári í 507 millj. kr. Með breytingunni staðfestir ráðuneytið að með tilfærslu fjármuna innan útgjaldaramma málefnasviðsins verður unnt að tryggja fjármögnunina á árinu 2027 og frá og með árinu 2028 þegar hækkunin sem felst í frumvarpinu kemur að fullu til framkvæmda. Við þá tilfærslu yrði einkum horft til fjármagns undir málaflokki 18.30, menningarsjóðir, í fjármálaáætlun líkt og ráðuneytið færir nánari rök fyrir í áðurgreindu minnisblaði. Á árinu 2024 nemur heildarfjárveiting þar sem tilfærsla fjármagns kemur til greina 2.177 millj. kr. Miðað við þær forsendur sem lagt er upp með í minnisblaði ráðuneytisins þarf að tryggja 147 millj. kr. hvort ár 2027 og 2028, með tilfærslu af 2.177 millj. kr. heildarfjárveitingunni. Er þá miðað við að ekki verði breytingar á fjárveitingum til menningarmála frá því sem fram kemur í fyrirliggjandi fjármálaáætlun 2025–2029.
Með vísan til framangreinds er það afstaða meiri hlutans að ráðuneytið hafi sýnt fram á að frumvarpið sé fjármagnað út tíma fyrirliggjandi fjármálaáætlunar á grundvelli forgangsröðunar innan útgjaldaramma málefnasviðsins. Í því felst jafnframt að fyrirliggjandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um sviðslistir muni ekki koma til afgreiðslu á yfirstandandi löggjafarþingi. Meiri hlutinn undirstrikar að tillögur til að tryggja fjármögnun frumvarpsins fela í sér forgangsröðun fjármagns hjá ráðuneytinu með tilfærslu fjármuna sem rúmast innan útgjaldaramma málefnasviðsins. Til að koma til móts við fjármögnun frumvarpsins tekur meiri hlutinn jafnframt undir tillögu ráðuneytisins um breytingar á frumvarpinu, sem gerð verður nánari grein fyrir.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að styðja við listsköpun og listamenn, enda hafi starfslaunakerfi listamanna verið óbreytt að umfangi frá árinu 2009, að undanskildum tímabundnum hækkunum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegi forseti. Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu: Í fyrsta lagi er lögð til breyting vegna fjármögnunar frumvarpsins sem áður hefur verið reifuð. Breytingin er liður í því að hægt verði að tryggja fjármögnun frumvarpsins. Meiri hlutinn undirstrikar að breytingin er lögð fram á þeim forsendum að hægt verði að ná sömu markmiðum í gegnum sérgreindu launasjóðina með því að leggja áherslu á nýliðun. Meiri hlutinn undirstrikar einnig að þrátt fyrir breytingu á frumvarpinu þá skuli áhersla lögð á upphafleg markmið stofnunar Vaxtar, sem er að tryggja aukna nýliðun í gegnum launasjóði sérgreindra listgreina. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að styðja þurfi sérstaklega við unga listamenn sem hafa enn ekki skapað sér styrka stöðu innan sinnar listgreinar, með það að markmiði að auka nýliðun og efla unga listamenn sem kunna að vera nýlega komnir úr námi eða að hefja sinn starfsferil. Meiri hlutinn ítrekar að áhersla verði lögð á aukna nýliðun við úthlutun úr hverjum sérgreindum launasjóði til ungra listamanna sem ekki hafi áður hlotið listamannalaun, að því gefnu að fagleg skilyrði séu uppfyllt. Meiri hlutinn beinir því til stjórnar listamannalauna að horft verði til þess að nýliðun innan hvers sjóðs verði a.m.k. 10% árlega.
Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar úthlutun úr Vegsemd. Í frumvarpinu er lagt til að stjórn listamannalauna úthluti fé úr Vegsemd að fengnum tillögum úthlutunarnefnda. Fyrir nefndinni og í umsögn um málið lagði Rannís til að það yrði skoðað að gera breytingar á frumvarpinu þar sem það verklag að úthlutunarnefndir leggi til hvaða umsækjendur geti fengið úthlutun úr Vegsemd og að stjórn listamannalauna þurfi að endurmeta þær umsóknir sé flókið og óhagkvæmt og geti leitt til þess að það skapist ágreiningur varðandi skiptingu mánaða milli listgreina. Rannís leggur til að litið verði á lögbundna úthlutun í Vegsemd sem lágmark og að stjórn listamannalauna fái heimild til að samþykkja hærri úthlutun sé það tillaga úthlutunarnefnda. Tillagan gengur út á að úthlutunarnefndir sérgreindra sjóða úthluti fé úr Vegsemd í samræmi við skiptingu sem stjórnin ákveður.
Meiri hlutinn tekur undir ábendinguna og leggur til breytingu á 2. mgr. c-liðar 11. gr. frumvarpsins þess efnis að úthlutunarnefndir launasjóða úthluti fé úr Vegsemd í samræmi við skiptingu milli listgreina sem stjórn listamannalauna ákveður að höfðu samráði við formenn úthlutunarnefnda. Úthlutunarnefnd sérgreinds launasjóðs getur ákveðið, með samþykki stjórnar listamannalauna, að styrkir sem svara til tiltekins fjölda mánaðarlauna færist frá viðkomandi sjóði og úthlutist úr Vegsemd. Breytingin varðar útfærslu á fyrirkomulagi úthlutana úr hinum nýja þverfaglega sjóði er snýr m.a. að skilvirkni í umsýslu. Þá skiptir máli að úthlutanir úr Vegsemd eru háðar rýmri skilyrðum en úthlutanir úr sérgreindum sjóðum og því til bóta að fela stjórn listamannalauna í samráði við úthlutunarnefndir tiltekið svigrúm hvað varðar framkvæmd úthlutana.
Þá lagði Rannís jafnframt til að falla frá breytingu á 3. mgr. 2. gr. laganna um að kveðið verði á um að úthlutunarnefndir geri tillögu um úthlutun úr þverfaglegum sjóðunum, svo að það verði skýrt að úthlutunarnefndir sjái um úthlutun. Til að gæta að samræmi milli ákvæða leggur meiri hlutinn til að b-liður 1. gr. frumvarpsins falli brott og að 3. mgr. 2. gr. laganna verði óbreytt.
Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar heiti launasjóðs hönnuða. Í umsögn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs er m.a. lagt til að heiti launasjóðs hönnuða í lögunum verði breytt í launasjóð hönnuða og arkitekta. Meiri hlutinn tekur undir ábendinguna og leggur til breytingu þess efnis.
Virðulegi forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
-Undir álit meiri hlutans rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða mál sem er til þess fallið að styrkja stöðu listamanna hér á landi. Menning og listir eru sífellt að verða sterkari í íslensku samfélagi og íslenskar listir eiga erindi út fyrir landsteinana. Þrátt fyrir þær breytingar sem meiri hlutinn leggur til er hér um að ræða virkilega jákvætt mál og mikilvægt og að því sögðu legg ég allar mínar vonir við að við samþykkjum þetta mál hér í þinginu fyrir þinglok.