154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

listamannalaun.

937. mál
[21:00]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir samvinnuna í allsherjar- og menntamálanefnd við meðferð þessa máls. Auðvitað lá það seint fyrir hvernig fjármálaáætlun yrði. Vonir okkar stóðu til þess að þessar milljónir, þessi aukning, kæmu inn í fjármálaáætlun. Aðstæður breyttust en samt sem áður er gert ráð fyrir 400 millj. kr. varanlegu viðbótarframlagi til menningarmála og það er m.a. verið að nýta þær inn í þetta. En af því að hv. þingmaður bendir á umsögn Viðskiptaráðs þá langar mig að lesa, með leyfi forseta, upp úr þeirri umsögn: „Forgangsraða ætti fjármunum innan málaflokksins í stað þess að ráðast í ófjármagnaða útgjaldaaukningu.“ — Sem við gerðum.