154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

listamannalaun.

937. mál
[21:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gaman að heyra hvað hv. þingmaður lætur sig menningarmál hér á landi miklu varða. Ég tel að það sé mikilvægt að við stöndum vörð um menningu og listir og þess vegna erum við á þessari vegferð, og þess vegna er menningar- og viðskiptaráðherra á þessari vegferð að styrkja stöðu listamanna á Íslandi á breiðum grunni.

Hvað varðar Vegsemd, svo ég svari spurningu hv. þingmanns, þá tel ég að heiðurslaun listamanna, sem eru afgreidd hér á haustþingi á hverju ári, séu mjög mikilvægur þáttur í því að heiðra listamenn. Hvort sjóðurinn Vegsemd muni taka við af heiðurslaunum listamanna verður tíminn bara að leiða í ljós en eins og hann er í dag, eins og hlutverk hans er lagt upp og eins og hann er settur fram í þessu frumvarpi, þá er það ekki tilgangur sjóðsins.