listamannalaun.
Virðulegi forseti. Skýrsla frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO frá árinu 2019 sýnir svo ekki verður um villst hversu góð áhrif listir hafa á lýðheilsu og lífsgæði. Byggt var á 900 rannsóknum sem allar sýna það sama. Listneysla bætir ónæmiskerfið, styrkir hjartað og æðarnar, léttir lund, vinnur gegn streitu og bætir sálræna líðan. Listir og menning hafa svo miklu og fjölbreyttu hlutverki að gegna í samfélagi að það er í raun sama hvar borið er niður, alls staðar má sjá mikilvægi skapandi greina. Félagslegt og menningarlegt gildi listsköpunar er óumdeilt. Listir eru stórkostleg landkynning og skapa efnahagsleg, tilfinningaleg og menningarleg verðmæti, veita ný sjónarhorn og endurspegla ríkjandi strauma og stefnur. Þá eru listir og hönnunargreinar ómissandi hluti af annarri nýsköpun, svo sem í tölvuleikjasmíði og framsetningu hugverka og uppfinninga. Það gefur því augaleið að samfélag sem vill gera sig gildandi meðal samfélaga hlúir að listum sínum og listafólki og þessi ríkisstjórn hefur stigið myndarlega inn í það hlutverk, m.a. með því að afnema skólagjöld til Listaháskólans. Svo eiga öll þess kost að stunda listnám á háskólastigi óháð efnahag og nú með löngu tímabærri hækkun listamannalauna en hvort tveggja var einmitt á stefnuskrá okkar í VG fyrir síðustu kosningar.
Menning og listir eru veigamikil stoð í fjölbreyttu atvinnulífi og hagræn áhrif þeirra skipta verulegu máli. Samkvæmt nýjustu menningarvísum námu rekstrartekjur skapandi greina árið 2021 rúmum 126 milljörðum kr. og árið 2022 störfuðu 15.400 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára í menningu og skapandi greinum. Það nemur 7,3% af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði. Fjárfesting í menningu og listafólki er því fjárfesting til framtíðar, ávísun á bæði aukna verðmætasköpun og fjölbreytt og dýrmæt störf. Það er því beinlínis þjóðhagslega hagkvæmt að styrkja fjárhagslegt umhverfi listamanna eins og nú stendur til, bæði með nýjum sjóðum og fleiri mánuðum í listamannalaun en ekki síður með verkefnasjóðum sem styrkja listir og menningu á annan hátt. Má þar nefna Barnamenningarsjóð og afkomusjóði listamanna eins og bókasafnssjóð og tónlistarsjóð, svo að einhver dæmi séu tekin.
Í skýrslu WHO er mælt með því að heilsugæslulæknar geti ávísað listneyslu og -ástundun við ýmsum sjúkdómum. Mér finnst það góð hugmynd. Fjárfesting í öflugri menningarstarfsemi er fjárfesting í aukinni velsæld og vellíðan samfélagsins til framtíðar. Mér hefur þótt allt of mikil áhersla í okkar samfélagi, og ekki síst þegar við horfum til landsbyggðarinnar, á einsleit karllæg störf. Það er svo að við þurfum öflugt atvinnulíf til þess að standa vörð um grunnstoðir okkar í almennri þjónustu, heilbrigðisþjónustu, vegabótum og fleiru, en fókusinn okkar hefur verið allt of mikill á greinar eins og stóriðju, fiskeldi og aðrar greinar sem eru ekki að virkja samfélögin til næringar og uppbyggingar. Ég hef haft af því áhyggjur að þegar við setjum öll eggin í sömu körfuna, þegar við stólum á einhverja stóra þunga atvinnugrein sem vex gríðarlega hratt, þá þarf svo lítið út af að bera til þess að allt falli um sjálft sig. Fjölbreytni í atvinnulífi er því það mikilvægasta sem við þurfum að horfa til þegar við byggjum upp grunnstoðir okkar og þar finnst mér ofboðslega mikilvægt að við horfum til skapandi greina. Og af hverju er ég að tala um þetta? Jú, af því að fyrir mér er þetta líka gríðarlega mikið landsbyggðarmál. Oft er það svo að listir og menning verða dálítið höfuðborgarmiðaðar alveg eins og heilbrigðisþjónusta, alveg eins og samgöngur, alveg eins og fókusinn, kannski að einhverju leyti eðlilega, beinist þangað sem flestir búa.
En það breytir því ekki að við höfum hér íbúa um allt land. Við eigum öflug samfélög hringinn í kringum landið sem hafa liðið fyrir það að fókusinn á landsbyggðinni, eins og ég segi, hefur verið á einsleit störf sem eiga að bjarga heilu samfélögunum. En ég held að það sé algjörlega ljóst að ef við stöndum ekki vörð um fjölbreytileikann í atvinnutækifærum til að ungt fólk, t.d. af landsbyggðinni, geti leitað sér menntunar, flutt aftur heim í sveit og starfað við það sem þau sjálf kjósa, þá erum við á rangri braut. Ekkert samfélag getur lifað á brauði einu saman, það er bara þannig. Þess vegna er það svo mikilvægt til þess að öll samfélög á byggðu bóli á Íslandi, hvort sem er í höfuðstaðnum þar sem við höfum stóru leikhúsin, danssýningarnar, hljómsveitirnar og allt mögulegt, allar aðstæður til að sækja okkur listneyslu — hér höfum við öll tækifærin en á landsbyggðinni er þetta flóknara. Við þurfum oft að hafa mikið fyrir því og við þurfum þess vegna sem samfélag að standa vörð um menningu og listir og ekki síst þannig, t.d. með sjóðum og listamannalaunum, að við stöndum alltaf vörð um aðgengi allra, óháð búsetu, óháð aldri, kyni, fötlun, uppruna, skiptir ekki máli. Þetta er mikið jafnréttismál. Við eigum að styðja við okkar skapandi fólk og þannig gerum við samfélagið okkar svo miklu öflugra, frjórra og betra fyrir okkur öll.