hafnalög.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Nefndin fjallaði um málið og fékk sinn fund gesti og nefndinni bárust níu umsagnir sem eru aðgengilegar á síðu málsins á vef Alþingis.
Í umfjöllun nefndarinnar kom fram ýmislegt. Í umsögnum Vesturbyggðar, Umhverfisstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambands Íslands er m.a. fjallað um 2. gr. frumvarpsins, um afmörkun hafnarsvæða. Þar er lagt til að í hafnarreglugerð, þegar kveðið er á um stærð og takmörkun hafnarsvæðis á sjó, skuli afmarka sérstaklega fjögur svæði en ekki eitt hafnarsvæði á sjó líkt og nú tíðkast. Eigendur hafna skuli samkvæmt ákvæðinu afmarka hvert og eitt svæði þegar þeir gera tillögu til ráðuneytis um hafnarreglugerð. Samband íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambandið vísa til þess í umsögn sinni að umrædd fjögur svæði geti skarast. Þannig geti þjónustusvæði hafna náð inn á hafnarsvæði farþegaskipa svo dæmi sé tekið. Í umsögn Vesturbyggðar er bent á að í skýringum þar sem fjallað er um afmörkun skipulagssvæða á sjó komi fram að tryggja þurfi að hafnarsvæði gangi ekki inn á svæði sem skilgreind eru í lögum um skipulag haf- og strandsvæða. Í því samhengi er bent á að skipulag um haf- og strandsvæði taki við utan 115 metra frá stórstraumsfjöruborði og geti hafnarsvæði verið skilgreind á þeim svæðum samkvæmt staðháttum og eldri lögum.
Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar kemur fram að umræddar breytingar séu m.a. lagðar til í þeim tilgangi að gera mörk hafnarsvæða skýrari svo að auðveldara sé að færa þau á sjókort. Þá sé tilgangur þess að kveða á um afmörkun tiltekinna svæða að skýra valdheimildir á umræddum svæðum, heimildir til gjaldtöku á hverju svæði fyrir sig og tryggja samræmi við önnur lög þar sem skilgreindum hafnarsvæðum sleppir. Einkum sé verið að tryggja að hafnarsvæði séu ekki skilgreind með þeim hætti að þau nái til svæða sem skilgreind eru samkvæmt lögum um skipulag haf- og strandsvæða, Með því að kveða á um að eigendur hafna afmarki í hafnarreglugerð það svæði þar sem þjónusta hafnar er veitt verði skýrara hvar mörkin liggja. Að því er varðar skörun mismunandi svæða og gjaldtökuheimildir er tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir að mismunandi svæði séu afmörkuð þannig að eitt svæði taki við af öðru. Fremur er um það að ræða að mörg svæði geti í raun verið á sama fleti en verið sjálfstæð svæði þrátt fyrir skörun.
Af 2. gr. hafnalaga er ljóst að innviðaráðherra fer með yfirstjórn hafnamála og annast Samgöngustofa og Vegagerðin þátt ríkisins samkvæmt lögunum og hafa eftirlit með framkvæmd þeirra. Meiri hlutinn telur ekki ástæðu til að kveða sérstaklega á um það í lögum að Vegagerðin veiti leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða en beinir því til innviðaráðherra að hlutast til um að slíkar leiðbeiningar verði útbúnar. Þá telur meiri hlutinn ekki tilefni til að leggja til breytingar á ákvæði frumvarpsins um afmörkun hafnarsvæða.
Hvað breytingar á 11. gr. frumvarpsins varðar, um frest til að skila ráðuneytinu endurskoðaðri hafnarreglugerð, vísast til umfjöllunar síðar um breytingartillögur meiri hlutans.
Í umsögnum Landhelgisgæslu Íslands, Persónuverndar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambands Íslands og Vesturbyggðar til nefndarinnar er m.a. fjallað um 4. gr. frumvarpsins, um rafræna vöktun í höfnum. Í umsögn Landhelgisgæslu Íslands er því fagnað að tillit hafi verið tekið til athugasemda stofnunarinnar í fyrri umsögnum varðandi rafræna vöktun í höfnum og er það talið til bóta að heimilt verði að miðla upplýsingum rafrænt til tiltekinna aðila í tengslum við lögbundin verkefni þeirra.
Persónuvernd bendir í umsögn sinni á að þegar sé til staðar heimild í lögum sem rafræn vöktun á hafnarsvæðum geti stuðst við, þ.e. samkvæmt almennum reglum um slíka vöktun í lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.. Jafnframt geti vinnsla persónuupplýsinga vegna vöktunarinnar fallið undir heimild til vinnslu sem telst nauðsynleg í þágu lögmætra hagsmuna auk annarra heimilda persónuverndarlaga sem tilgreindar eru í umsögninni. Þá bendir Persónuvernd á mikilvægi þess að lög sem veita heimild til rafrænnar vöktunar séu skýr. Í því sambandi er vakin athygli á misræmi milli orðalags ákvæðisins og athugasemda við ákvæðið í greinargerð með frumvarpinu þar sem ákvæðið heimili rafræna miðlun upplýsinga til notenda hafna en í greinargerð til almennings. Persónuvernd telji ljóst að orðalagið „notendur hafna“ geti ekki náð til alls almennings heldur aðeins þeirra sem nýta þá þjónustu sem þar er veitt.
Samband íslenskra sveitarfélaga og Hafnasamband Íslands leggja áherslu á að miðlun verði heimil til notenda hafna í rauntíma á opnu vefsvæði, enda notendur hafna óskilgreindur hópur líkt og vegfarendur. Um mikilvægt öryggisatriði sé að ræða fyrir notendur hafna til að geta fylgst með skipum og aðstæðum hverju sinni.
Vesturbyggð leggur til í umsögn sinni að bætt verði við ákvæði um rafræna vöktun heimild til að veita Fiskistofu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun aðgang að rafrænni vöktun hafna þegar um fjarvigtun er að ræða.
Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar kemur m.a. fram að með ákvæði um rafræna vöktun í höfnum sé lagt til að stjórnir hafna fái heimild til að vakta hafnarsvæði rafrænt og miðla upplýsingum til lögreglu, Landhelgisgæslu Íslands, tollgæslu Skattsins, rannsóknarnefndar samgönguslysa og vaktstöðvar siglinga. Þá verði heimilt að miðla upplýsingum til notenda hafna í öryggisskyni. Þá kemur fram að ákvæðið sé lagt til í þeim tilgangi að styrkja lagastoð fyrir miðlun persónuupplýsinga sem til verða við slíka vöktun. Megintilgangur þess að kveða á um heimildina í hafnalögum nú sé að veita skýra lagaheimild fyrir miðlun persónuupplýsinga til þeirra aðila sem tilgreindir eru í ákvæðinu í tengslum við lögbundin verkefni þeirra. Ráðuneytið gerir ráð fyrir því að sveitarfélög framkvæmi mat á áhrifum vöktunarinnar á persónuvernd í samræmi við persónuverndarlöggjöfina og sé það sveitarfélaganna að tryggja að rafræn vöktun á vefsvæði hafnanna sé í samræmi við reglur um persónuvernd. Í tengslum við tillögu þess efnis að einnig verði heimilt að miðla upplýsingum til Fiskistofu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar telur ráðuneytið óþarft að kveða á um slíkt í hafnalögum. Í því sambandi er bent á heimildir Fiskistofu samkvæmt lögum um Fiskistofu, nr. 36/1992, sbr. breytingar sem gerðar voru á þeim lögum með lögum nr. 85/2022.
Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og telur ekki tilefni til að leggja til breytingar á ákvæði frumvarpsins um rafræna vöktun.
Þá er komið hér að eldisgjaldinu sem er kannski meginefni frumvarpsins.
Í umsögnum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambands Íslands, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Vesturbyggðar og Samtaka atvinnulífsins er m.a. fjallað um 6. gr. frumvarpsins um eldisgjald. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambands Íslands er lagt til að ákvæðinu verði breytt þannig að aflagjald verði lagt á eldisfisk og eldisseiði en ekki eldisgjald. Vísað er til þess að samkvæmt 17. gr. hafnalaga skuli greiða aflagjald. Skortur sé á rökstuðningi í frumvarpinu fyrir því að annars konar gjald eigi að gilda fyrir eldisfisk og eldisseiði og því er lagt til breytt orðalag ákvæðisins þar sem miðað verði við heildaraflaverðmæti.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi benda í umsögn á að hafnir hafi til þessa byggt sértæka gjaldtöku á fiskeldisfyrirtæki á ákvæði um aflagjald, þ.e. e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. laganna. Áhöld hafi verið uppi um lögmæti slíkrar gjaldtöku á þeim grunni þar sem heimildin nái samkvæmt orðanna hljóðan til afla sjávarútvegsfyrirtækja en ekki til eldisfisks frá fiskeldisfyrirtækjum. Vísað er til dóms Héraðsdóms Vestfjarða í máli frá 2020.
Bent er á að ágreiningur um töku aflagjalds nái ekki til annarra heimilda hafna til töku hafnargjalda af eldisfyrirtækjum. Ágreiningur hafi ekki verið um aðrar gjaldtökuheimildir hafna á grundvelli 17. gr. hafnalaga, svo sem skipagjöld, vörugjöld, hafnsögugjöld og leigugjöld. Til staðar sé heimild til töku vörugjalds í 17. gr. hafnalaga og telji samtökin engan mun á eldisgjaldi og heimild til töku vörugjalds. Sömu grundvallarsjónarmið um álagningu þjónustugjalda eigi við um samræmi milli gjaldtöku og kostnaðar við að veita þjónustuna. Þau telji ávinning af sértækri gjaldtökuheimild af eldisfiski óljósan og jafnvel engan og einnig að skapað geti misskilning í framkvæmd að höfnum sé heimilt að ákvarða álagningu eldisgjalds á öðrum forsendum en eigi við um vörugjald.
Í umsögn Vesturbyggðar kemur fram að eldisgjald af eldisfiski í sjókvíum geti skapað óvissu í rekstri hafna ef það er sett í hendur hverrar hafnar fyrir sig að ákveða á hvaða grunni eldisgjald er ákveðið, eins og fram kemur í umfjöllun um 6. gr. frumvarpsins í greinargerð. Vesturbyggð leggur til að kveðið verði skýrt á um að eldisgjald miðist við aflaverðmæti þeirra sjávarafurða sem umskipað er, lestaðar eru eða losaðar í höfnum. Lagt er til að skilgreint verði sérstakt hlutfall af aflaverðmæti þar sem miðað verði við minnst 0,7% og mest 3,0% af heildarverðmæti miðað við meðaltal alþjóðlegs markaðsverðs á atlantshafslaxi fyrir þann mánuð sem slátrun fer fram.
Samtök atvinnulífsins tilgreina í umsögn sinni að skýra þurfi gjaldtökuheimildir hafna til að taka gjald fyrir þjónustu fiskeldisfyrirtækja. Samtökin árétta hins vegar mikilvægi þess að gjaldtakan verði fyrirsjáanleg og byggð á traustum grunni þannig að fyrirtæki á sviði fiskeldis geti tekið tillit til hennar í áætlanagerð sinni.
Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar kemur m.a. fram að hafnir hafi fram til þessa byggt gjaldtöku sína vegna starfsemi fiskeldisfyrirtækja við lestun og losun eldisfisks í höfnum á ákvæði um aflagjald, þ.e. e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga. Í ákvæðinu segi að höfnum sé í gjaldskrá heimilt að innheimta aflagjald af sjávarafurðum sem umskipað er, lestaðar eru eða losaðar í höfnum. Sé gjaldið innheimt skal það vera minnst 1,25% og mest 3% af heildaraflaverðmæti. Ráðuneytið vísar til þess að þegar þessu ákvæði hefur verið beitt í framkvæmd hafa ekki ávallt verið notuð þau viðmið um hlutfall heildaraflaverðmætis sem nefnd eru í ákvæðinu, heldur stuðst við lægri prósentutölu. Með frumvarpinu er lagt til að við 17. gr. hafnalaga bætist nýr stafliður um eldisgjald af eldisfiski í sjókvíum. Gjöld samkvæmt þessum staflið skulu greidd af þeim sem rækta eldisfiskinn sem fer um höfn hverju sinni. Um afmarkað gjald sé að ræða sem nær ekki til annarrar starfsemi fiskeldisfyrirtækja. Í tengslum við sjónarmið umsagnaraðila um að miða skuli gjaldtöku af eldisfiski við ákvæði um aflagjald og að miðað skuli við aflaverðmæti telur ráðuneytið að reynsla síðustu ára hafi sýnt að þörf er á sérstöku ákvæði um gjaldtöku af eldisfiski.
Ráðuneytið tiltekur, að því er varðar afmörkun gjaldgrunnsins, að þjónustuveitandinn reikni út þann gjaldagrunn sem gjaldið er byggt á. Er það eðli þjónustugjalda að þeim er ætlað að standa straum af kostnaði við veitingu þeirrar þjónustu sem innheimt er fyrir. Að því er varðar sjónarmið umsagnaraðila um að þegar sé til staðar heimild til töku vörugjalds er tekið fram að einhverjir þættir í starfsemi fiskeldisfyrirtækja kunni að falla undir heimild til töku vörugjalds, þ.e. gjaldtökuheimildir geti mögulega skarast í einhverjum tilvikum. Ekki sé hægt að fullyrða að öll þjónusta sem tengist fiskeldisfyrirtækjum falli undir vörugjaldsheimild og því mikilvægt að kveða sérstaklega á um heimild til gjaldtöku af eldisfiski. Þá telur ráðuneytið rétt að það sé sett í hendur hverrar hafnar fyrir sig að ákveða á hvaða grunni gjald er ákveðið.
Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og telur ekki tilefni til að leggja til breytingar á ákvæði frumvarpsins um eldisgjald. Meiri hlutinn áréttar að frumvarpið er ekki tilkomið vegna nýlegs dómsmáls heldur byggist frumvarpið á grunni frumvarps sem lagt var fram á 151. löggjafarþingi sem ekki náði fram að ganga en innihélt sambærilegt ákvæði um eldisgjald.
Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að taka til athugunar hvort unnt sé að útfæra ákvæði um eldisgjald þannig að gjaldstofn miðist við verðmæti eldisfisks, áþekkt því sem mælt er fyrir um í e-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr hafnalaga um aflagjald.
Þá erum við komin að ákvæði um skírteini fyrir hafnsögumenn. Í ákvæðinu er m.a. fjallað um skilyrði sem einstaklingur þarf að fullnægja til þess að geta öðlast skírteini til að vera hafnsögumaður skipa. Meðal þeirra skilyrða er að vera 25-69 ára að aldri. Í kafla 2.6. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í III. kafla laga um vaktstöð siglinga sé kveðið á um hafnsögu og leiðsögu. Ákvæði þessa kafla eru að mestu leyti óbreytt frá ákvæðum sem var að finna í lögum um leiðsögu skipa, nr. 34/1993, sem voru felld úr gildi með lögum nr. 41/2003. Talið sé rétt að ákvæði um hafnsögu sé að finna í hafnalögum. Í frumvarpinu eru því ekki lagðar til efnislegar breytingar á framangreindu aldursskilyrði.
Meiri hlutinn telur engu að síður tilefni fyrir ráðherra að kanna hvort tilefni sé til að gera breytingar á framangreindum lagabálkum og fella úr gildi aldursskilyrðið en önnur hæfniskilyrði standi óbreytt.
Um kæruheimild vegna gjaldskrárákvarðana. Í umsögnum Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu, Samtaka verslunar og þjónustu og Vegagerðarinnar er m.a. fjallað um 9. gr. frumvarpsins, um kæruheimildir vegna gjaldskrárákvarðana og m.a. gerðar athugasemdir við að þær verði kæranlegar til Samgöngustofu. Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar kemur fram að ráðuneytið telji rétt skref að ákvarðanir samkvæmt hafnalögum verði kæranlegar til Samgöngustofu. Samgöngustofa sé stofnun með mikla sérfræðiþekkingu og sinni úrskurðum í kærumálum, m.a. á grundvelli loftferðalaga.
Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og telur kærurétt vegna gjaldskrárákvarðana ekki skertan með framangreindri breytingu.
Þá eru það breytingartillögurnar.
1. Aðgangsbann að höfnum. Nefndin fjallaði um a-lið 7. gr. frumvarpsins um aðgangsbann að höfnum í ljósi umsagnar Landhelgisgæslu Íslands. Í umsögninni er lagt til að upplýsa beri hafnaryfirvöld og Landhelgisgæslu Íslands um það þegar mælt hefur verið fyrir um aðgangsbann tiltekins skips eða skipa að höfnum. Mikilvægt sé að hafnaryfirvöld og viðbragðsaðilar séu upplýstir. Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar er tekið undir framangreind sjónarmið. Meiri hlutinn tekur undir framangreint og leggur til breytingartillögu þess efnis að Samgöngustofu beri að upplýsa viðeigandi hafnaryfirvöld og Landhelgisgæslu Íslands um aðgangsbann skipa að höfnum.
2. Vísun til leiðsögumanns. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambandsins til nefndarinnar kemur fram að í b-lið 7. gr. frumvarpsins sé vísað til leiðsögumanna en ákvæðið eigi aðeins við um hafnsögumenn. Í minnisblaði innviðaráðuneytis kemur fram að um villu sé að ræða og leggur meiri hlutinn því til breytingu á frumvarpinu í samræmi við framangreint.
3. Afmörkun hafnasvæða. Með vísan til umfjöllunar nefndarinnar að framan um 2. gr. frumvarpsins telur meiri hlutinn rétt að leggja til þá breytingu á 11. gr. frumvarpsins að eigendur hafna skuli senda ráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæða í sjó eigi síðar en 1. janúar 2026 í stað 1. janúar 2025.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem fylgja hér í nefndarálitinu.
Mig langar aðeins að velta upp hér nokkrum hugleiðingum varðandi þetta frumvarp sem ég fagna að hafi komið fram á þessu þingi og sjáanlega verður þetta að lögum því að það hefur verið unnið að þessum breytingum og unnið fyrir þeim síðan 2018. Það er mjög mikilvægt að þessar breytingar komi fram fyrir þau sveitarfélög sem snúa að sjókvíaeldinu og það hefur mikið verið kallað eftir því. Það hefur verið kallað eftir skýrum ramma kringum eldisgjaldið. Eins og kemur fram í nefndarálitinu er því beint til til ráðherra að útfæra skuli þetta ákvæði enda taldi meiri hlutinn að ekki hefði unnist tími til að útfærslan yrði raunhæf, hún þyrfti bæði að vera vel útfærð og njóta umsagnar þeirra aðila sem við ættu. Var því bara fallist á að þetta yrði óbreytt en vissulega tekur nefndin undir áhyggjur umsagnaraðila og þá Vesturbyggðar. Það skal tekið fram að umsagnaraðilar voru alls ekki á eitt sáttir um hvernig þetta skyldi vera útfært. Í umsögn Vesturbyggðar kemur fram að eldisgjaldið ætti að koma fram og yrði þá innan ákveðins ramma. Samband íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambandið vildu bara vísa í aflagjaldið, að það yrði skýrt þar undir að eldisfiskur væri sú sjávarafurð sem félli undir það. Aðrir vildu hafa aðrar leiðir. En ég tel að það sé mjög mikilvægt að þetta nái fram að ganga, að hafnirnar og sveitarfélögin hafi skýra heimild til að taka gjald af þessari þjónustu en það verði unnið hratt og vel í því hvernig það verði útfært. Það væri heldur ekki vel frá því gengið ef það yrði farið út í aðrar breytingar eins og með aflagjaldið sem ríkir réttaróvissa um og þá væru sveitarfélögin á sama stað og þegar af stað var lagt með þetta. En, virðulegi forseti, ég hef lokið máli mínu.