154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.

905. mál
[21:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði sem lítur að umfjöllun Persónuverndar.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Með frumvarpinu er lagt til að umsóknarferli vísindarannsókna á heilbrigðissviði verði einfaldað og stytt og regluverk hér á landi verði fært nær regluverki nágrannalanda. Breytingarnar eru til þess fallnar að auka skilvirkni málsmeðferðar við veitingu leyfa fyrir vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.

Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er ekki lögð til breyting á heimildum til vinnslu persónuupplýsinga heldur breyting á stjórnsýsluframkvæmd. Verði frumvarpið samþykkt verður vísindafólki á heilbrigðissviði eftir sem áður skylt að fara eftir þeim reglum sem gilda um vinnslu persónuupplýsinga, bæði á grundvelli laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, og laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.

Þá bendir meiri hlutinn á að vísindasiðanefnd og siðanefndir heilbrigðisrannsókna skuli gæta þess að vísindarannsóknir sem þær meti séu skipulagðar og framkvæmdar með þeim hætti að siðfræðileg og vísindaleg sjónarmið séu höfði í heiðri og persónuverndar gætt, sbr. 4. gr. laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Frumvarpinu er því ekki ætlað að víkja brott kröfum laga til miðlunar og varðveislu gagna til notkunar í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði heldur eingöngu einfalda ferli og gera skilvirkara.

Meiri hluti velferðarnefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hluta rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Steinunn Þóra Árnadóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Óli Björn Kárason.