154. löggjafarþing — 125. fundur,  19. júní 2024.

staðfesting rammasamkomulags milli Íslands og Grænlands um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum.

1104. mál
[21:47]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Við í utanríkismálanefnd höfum fjallað um þetta mál, um þetta rammasamkomulag sem hefur verið í gildi í nokkuð langan tíma á milli Íslands og Grænlands, um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum. Ég vil fara aðeins yfir nefndarálitið með málinu en við höfum fjallað um það í nefndinni og fengið gesti á okkar fund, m.a. frá matvælaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis, okkar hér, til að staðfesta fyrir Íslands hönd rammasamkomulag milli Íslands og Grænlands um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum, sem gert var í Reykjavík 3. júlí 2023, ásamt eftirfarandi viðaukum.

Í 1. viðauka, eins og við sjáum þegar við lesum um málið, er það samkomulag um langtímaveiðistjórnun loðnustofnsins á hafsvæðinu milli Austur-Grænlands, Íslands og Jan Mayen. Í 2. viðauka eru það ráðstafanir varðandi aðgang og tæknileg skilyrði til loðnuveiða milli Íslands og Grænlands. Í 3. viðauka er tafla í 1. og 2. kafla en þar er skýrslugjöf um aflamark loðnu og loðnuafla á hafsvæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að Ísland hafi í lok ársins 2022 sagt upp samningi Íslands, Grænlands og Noregs um skiptingu og veiðar á loðnustofninum sem gerður var 2018. Það sama ár hófust nýjar samningaviðræður milli strandríkjanna en Noregur gekk frá samningaborðinu í júní 2023. Það er náttúrlega umhugsunarefni, að mínu mati, og ég tala bara fyrir mína hönd hér, að það er erfitt, þegar kemur að uppsjávarstofnunum, að ná samkomulagi á milli Noregs og Færeyja, en þetta er þó alla vega viðleitni í þá átt að reyna að ná slíku samkomulagi. Þess vegna, í ljósi mikilvægi málsins, hafa Ísland og Grænland lagt áherslu á að halda viðræðum áfram og hefur þeim viðræðum lokið með samkomulagi þessu.

Ísland og Grænland buðu Noregi aðgang að samkomulaginu en í apríl 2024 lá fyrir að Noregur gæti ekki gengið að nýju samkomulagi vegna ágreinings um aðgang Noregs til veiða á sinni hlutdeild innan lögsögu Íslands. Þetta er það sem ég hef oft sagt: Við þurfum að átta okkur á því að það er ekki sjálfgefið að hagsmunir Íslands fari endilega saman við hagsmuni Noregs og Færeyja. Við þurfum að halda vel á málum til að hagsmunum Íslands verði ýtt áfram og haldið verði utan um þá. Við verðum líka að nýta þá aðstöðu sem við höfum í þessum samningaviðræðum. En þetta er svolítið snúið. Stundum erum við á svipuðu rófi og Noregur og stundum erum við líka á sömu blaðsíðu og Evrópusambandið. Við þurfum fyrst og síðast að hugsa um okkar hagsmuni.

Í þessu máli sem öðrum skiptir máli að við Íslendingar komum okkar sjónarmiðum á framfæri. Því sterkari sem við erum við borðið því meiri skilningur er á því hvaða hagsmunir eru undir þegar Ísland er annars vegar. Það kemur náttúrlega ekki á óvart að ég er að tala um Evrópusambandið í þeim efnum en ég ætla ekki að fjalla um það. Við erum hér að tala um þetta álit sem er frá utanríkismálanefnd og við erum öll á því og erum sammála því að það beri að mæla með þessu.

Í fyrra samkomulagi frá 2018 var gert ráð fyrir að aflaheimildir Íslands næmu 80% af heildaraflamarki, Grænland fengi 15% og Noregur fengi 5%. Í ljósi minnkaðrar viðveru loðnu í lögsögu Jan Mayen en aukinnar í grænlenskri lögsögu var samið um að hlutur Grænlands ykist, og það er ekkert óeðlilegt, í 18% en hlutur Noregs færi niður í 1%. Jafnframt var hlutdeild Íslands 81% þannig að við erum enn vel yfir 80% en við erum að reyna að ná þessu samkomulagi þannig að ákveðið jafnvægi verði á milli landanna, Færeyja, Grænlands og síðan Noregs. Hið nýja samkomulag gerir ekki ráð fyrir öðrum breytingum á fyrirkomulagi kvótaúthlutunar og aðgangur grænlenskra skipa er óbreyttur. Samkomulagið staðfestir formlega að ákvörðun heildarafla á hverri vertíð byggist á langtímanýtingarstefnu. Alþjóðahafrannsóknaráðið ICES hefur staðfest að þessi nýtingarstefna, eins og hún er skilgreind í 1. viðauka við samkomulagið, er í samræmi við viðmið um ábyrgar veiðar, sjálfbærni stofnsins og varúðarsjónarmið.

Að þessu gefnu mælir utanríkismálanefnd einhliða með að við samþykkjum þetta.