154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

endurbætur á örorkulífeyriskerfinu.

[10:34]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Samfylkingin axlar ábyrgð á Íslandi, jafnt í stjórn sem stjórnarandstöðu. Það hefur endurspeglast í verklagi okkar hér á Alþingi. Engin upphlaup, engin pólitísk ærsl heldur einungis staðföst og málefnaleg gagnrýni og tillögur til úrbóta. Nú hefur stjórnarandstaðan öll sameinast um breytingartillögur í afar mikilvægu máli sem varðar kjör tugþúsunda Íslendinga og öryggisnet alls vinnandi fólks í landinu. Þetta eru breytingar í fimm liðum á frumvarpi hæstv. félagsmálaráðherra um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Þar eru það fulltrúar Samfylkingar, Flokks fólksins, Pírata, Viðreisnar og Miðflokksins sem standa saman. Það eru auðvitað tíðindi, forseti, að svo ólíkir flokkar hafi náð saman í svo stóru og hápólitísku máli. Þarna gæti verið vísir að breiðri sátt sem byggir á ákveðnum lágmarkskröfum.

Í stuttu máli snúast breytingarnar um að enginn öryrki verður skilinn eftir og þetta eru hófstilltar kröfur sem fela ekki í sér stórvægileg viðbótarútgjöld. Tillögurnar fimm eru eftirfarandi: Að heimilisuppbótin hækki þannig að enginn öryrki verði beinlínis í verri stöðu en áður. Í öðru lagi að öryrkjar í atvinnuleit fái meira svigrúm til að finna starf við hæfi án þess að virknistyrkur falli niður. Í þriðja lagi að hnykkt sé á því að enginn sem er nú þegar með örorkumat verði þvingaður í svokallað samþætt sérfræðimat sem við vitum ekki enn hvernig verður útfært. Í fjórða lagi að þingið fái skýrslu frá ráðherra um útfærslu á þessu nýja mati áður en það verður innleitt og síðast en ekki síst að skerðing á örorkulífeyri vegna fjármagnstekna maka verði afnumin.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Kemur til greina af hans hálfu að beita sér fyrir því að tillögurnar verði samþykktar? Væri ekki góður bragur á því í lok þings að hæstv. forsætisráðherra hefði forystu um að mæta þessum lágmarkskröfum til að bæta kjör öryrkja og efla öryggisnet vinnandi fólks í landinu?