154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

endurbætur á örorkulífeyriskerfinu.

[10:36]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta var ágætisræða um það hversu sanngjörn og málefnaleg og uppbyggileg Samfylkingin er í þinginu og bara prýðilegt þegar fólk kemur hingað upp í ræðustól og fellir síðan dóma um eigið ágæti. Ég vil bara minna á í tilefni af þessari ágætu ræðu að næsta mál á dagskrá er vantraust á ráðherra í ríkisstjórninni sem sami hv. þingmaður sagði að kæmi ekki til greina annað en að samþykkja, sem ég myndi nú persónulega kalla algjört upphlaup hér í þinginu. En það var það sem hv. þingmaður sagði að flokkurinn stæði ekki fyrir.

En gott og vel, ræðum aðeins um þessa tillögu. Væri hægt að gera enn betur við öryrkja með nýjum 500 millj. kr. útgjöldum? Já, ég er alveg viss um að það er hægt að gera það. Eru þetta málefnalegar, fínar tillögur til að hvetja til enn frekari atvinnuþátttöku hjá þeim sem geta stundað atvinnu og myndi það auka réttindi að draga úr tilliti til þess hvað er að gerast í fjármálum maka? Já, já, þetta eru ekkert galnar tillögur, alls ekki. Þetta mál hefur hins vegar verið í undirbúningi í mjög mörg ár. Það er lagt fyrir þingið til að vinna það áfram og ég vonast til þess að í nefndinni sé hægt að taka umræðu um breytingar og ef hægt er að ná breiðri samstöðu um jákvæðar breytingar á málinu þá ætla ég ekki að standa því í vegi, en á endanum þá helst þetta auðvitað í hendur við heildarútgjaldastig ríkissjóðs. Síðast þegar ég vissi voru þessar hugmyndir sem minni hlutinn hefur sameinast um til skoðunar og ég ætla ekki að verða til þess að slá þær út af borðinu. Þær eru aðallega til skoðunar hjá félagsmálaráðherra sem hefur verið í samskiptum við fjármálaráðherra. Það kann vel að vera að hægt sé að ná sameiginlegri niðurstöðu um þetta og ég er sammála því að það gæti verið hægt að ná enn betur markmiðum með nýjum útgjöldum. En höfum það þá bara hugfast að það er hálfur milljarður á ári um alla framtíð.