fordæming á framgöngu Ísraelsmanna á Gaza sem þjóðarmorðs.
Forseti. Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur lýst því yfir að eina leiðin til þess að koma mannúðaraðstoð á svæðið sé að stöðva allar árásir á svæðinu. Í stað þess að virða þessa niðurstöðu Alþjóðadómstólsins fór Ísraelsher í allsherjarinnrás í Rafah og gaf enn frekar í frekar en að dregið væri úr vísvitandi svelti á palestínsku þjóðinni. Ekki er aðeins verið að sprengja menn, konur og börn í loft upp svo heilu fjölskyldurnar og ættleggirnir hafa þurrkast út, heldur er nánast útilokað að fá heilbrigðisþjónustu af nokkru tagi. Matur og vatn eru af verulega skornum skammti. Trúarlegum byggingum og menningu Palestínumanna er kerfisbundið tortímt. Þetta eru allt dæmi um stríðsglæpi og einkenni þess sem í þjóðarétti er kallað þjóðarmorð. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna gaf í gær út skýrslu sem fjallar um kerfisbundin brot Ísraels á alþjóðalögum um stríðsrekstur. Brotin felast í því að vernda ekki saklausa borgara og innviði. Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig ætlar ríkisstjórn Íslands að sýna fordæmingu sína í verki?