154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[11:23]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi samþykki vantraust á matvælaráðherra. Tilefnið er, eins og þekkt er, stjórnsýsla ráðherra og það viðvarandi ólögmæti sem meðferð matvælaráðherra á málum tengdum hvalveiðum við Ísland hefur verið undirorpin. Á sama tíma og lög eru brotin og stjórnsýslureglur tvist og bast rekur ráðherrann hornin í ákvæði stjórnarskrárinnar, þá sérstaklega atvinnufrelsis- og eignarréttarsjónarmið þar. Vantraustið, eins og fram kemur, beinist gegn matvælaráðherra einum en ekki ríkisstjórninni allri.

Það er nauðsynlegt að ramma örsnöggt inn sögu málsins sem hefur haft þetta viðvarandi ólögmæti alltumlykjandi frá því að hæstv. þáverandi matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tók ákvörðun fyrir rétt rúmu ári síðan. Við þekkjum afstöðu umboðsmanns Alþingis, trúnaðarmanns okkar, til þeirrar stjórnsýslu sem þar var í gangi og þá bótaskyldu sem blasir við að skattgreiðendur muni bera í framhaldinu þegar endanleg niðurstaða er komin í því máli. Síðan tekur við hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra, sem gegnir tímabundið störfum matvælaráðherra og á því tímabili kemur fram umsóknin, sem er nú í rauninni tilefni þess að matvælaráðherra gengur fram með þeim hætti sem nú hefur orðið. Það er ekkert gert með umsóknina lengi vel og þá kemur að þeim tímapunkti sem hæstv. núverandi matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, tekur við boltanum. Mér er það til efs að annar ráðherra hafi nýtt tíma sinn í ráðuneytinu jafn vel til að fara á svig við lög og reglur.

Lykilatriði í þessu máli er ásetningurinn. Það var enginn lagalegur ágreiningur. Hæstv. ráðherra notaði það meira að segja sem rökstuðning fyrir því að gefa út leyfið á endanum að hæstv. ráðherra hafi aldrei staðið neitt annað til boða á grundvelli gildandi laga. Þetta er algjört lykilatriði þegar við leggjum mat á alvarleika málsins. Ráðherrar eru hér dagana langa í deilumálum þar sem er uppi lagalegur ágreiningur. Það á ekki við í þessu máli. Framgangan gagnvart starfsmönnum sem hafa stundað þessa starfsemi og þeim fyrirtækjum sem þjónusta eða þá fyrirtækinu sjálfu sem óskaði eftir leyfinu eru forkastanleg og hreinlega ótrúlegt að sumir þingflokkar stjórnarflokka samstarfsins láti þetta yfir sig ganga.

En nú kem ég stuttlega að meðferð núverandi hæstv. matvælaráðherra á málinu.

Drátturinn. Hvalur hf. sækir um leyfi í lok janúar. Það er ekkert gert í málinu fyrr en eftir dúk og disk. Mögulega var það til að tefja útgáfu leyfis, sem var óumflýjanlegt að gefa út á grundvelli gildandi laga, að draga það fram yfir forsetakosningar. Það er mál sem skiptir ekki máli í heildarmyndinni. Ráðherra er bara ekki í stöðu til að taka slíkar ákvarðanir í pólitískum tilgangi, hver sem afstaða flokksins er til þess máls sem um ræðir. Ráðherrar Vinstri grænna hafa verið í fullum færum til að leggja fram breytingartillögur við lög um hvalveiðar alveg síðan flokkurinn tók við ráðuneytinu árið 2021. Það er óskað eftir umsögnum eftir dúk og disk. Allt eru þetta tafaleikir spilaðir eins lengi og nokkur kostur er og á endanum er síðan gefið út gagnslaust leyfi. Það blasir við öllum sem hafa einhvern skilning á rekstri að þau aðföng og þeir starfsmenn sem þarna þarf til eru ekki hilluvara sem hægt er að sækja út í Bónus. Það þarf undirbúning. Þetta vissi ráðherrann. Markmiðið var alltaf að koma í veg fyrir það að hvalveiðar yrðu stundaðar hér við land.

Það er lykilatriði að þessi vantrauststillaga gengur ekki út á afstöðu fólks til hvalveiða eða ekki. Hún gengur út á stjórnsýslu ráðherrans sem er forkastanleg og það er hreinlega alveg ótrúlegt að þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks láti þetta yfir sig ganga. Afstaða þessara tveggja þingflokka hefur, að maður taldi, verið nokkuð skýr en nú samkvæmt fréttum virðast flokkarnir ætla að verja þessa stjórnsýslu. En ég ætla að halda því til haga og árétta að það hefur verið upplýst að þegar ríkisstjórnin var skrúfuð saman árið 2021 var þetta rætt og niðurstaðan var sú að leggjast ekki gegn áframhaldandi hvalveiðum.

En, virðulegur forseti, ég ítreka það að vantrauststillagan hér er á matvælaráðherra einan en ekki ríkisstjórnin alla. Það er lykilatriði að hér er um ásetning að ræða í pólitískum tilgangi en ekki lagalega óvissu. Og enn bætist sennilega við bótaskyldu ríkissjóðs á grundvelli þessarar ákvörðunar ráðherrans. Ég sagði í viðtali í kjölfar ákvörðunar matvælaráðherra fyrir ári síðan að sjónarmið um ráðherraábyrgð ættu vel við í þessu máli. Það var áhugavert að heyra lögfræðilegan ráðgjafa ríkisstjórnarinnar taka undir þau sjónarmið á Bylgjunni í morgun. Virðingarleysi gagnvart mannréttindum þeirra sem starfa við veiðarnar er botnlaust og afstaðan gagnvart þeim sem stunda atvinnustarfsemi á grundvelli gildandi laga er þannig vaxin að ég hefði aldrei trúað því upp á Sjálfstæðisflokkinn, merkilegasta stjórnmálaflokk íslenskrar stjórnmálasögu, að leggjast svo lágt að láta þetta óátalið. Málið snýst, eins og ég segi, um stjórnsýslu ráðherrans en ekki afstöðu fólks til þess hvort veiða skuli hval eða ekki.

Hv. þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði í fréttum í gærkvöldi að Sjálfstæðisflokkurinn myndi fella þessa tillögu. Tillagan væri pólitískt leikrit og furðutillaga. Maður hlýtur að spyrja sig: Var afstaða hv. þingflokksformanns sú sama þegar hv. þm. Teitur Björn Einarsson var sendur með skilaboð þingflokks Sjálfstæðisflokksins á fund á Akranesi fyrir rétt um ári síðan? (Gripið fram í.) Ég held ekki. Þetta verður allt að skoðast í samhengi, hæstv. forsætisráðherra. Þetta er samfelld saga ólögmætis sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að verja í máli sem kjarnast um atvinnufrelsi í landinu. Þetta er hreinlega alveg ótrúleg staða. Eini leikaraskapurinn í þessu grafalvarlega máli er því miður nálgun samstarfsflokka Vinstri grænna á málið allt þar sem flokkarnir setja sig í þá stöðu að verja óforsvaranlega stjórnsýslu, sennilega því miður til að verja stólana sína.

Við þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks segi ég: Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?