154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[11:30]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Sú vantrauststillaga sem fyrir okkur liggur er pólitískt skammhlaup Miðflokksins, til þess gerð að veiða atkvæði. Það að fara fram með þessum hætti aðeins nokkrum mánuðum eftir að ríkisstjórnin varðist vantrausti gerir ekkert annað en að grafa undan pólitísku trausti í samfélaginu og trú fólks á lýðræðinu. Þetta er pólitískur hildarleikur gerður til að reka fleyg á milli stjórnarflokkanna og það er þyngra en tárum taki að sjá aðra stjórnarandstöðuflokka sem ég taldi suma vanda að meðulum sínum og ábyrga að stökkva á þennan lýðskrumsvagn.

Þrátt fyrir að við séum hér að klára sjöunda þing í samstarfi þessara flokka virðist það eitt vaka fyrir stjórnarandstöðunni að benda á hið augljósa: Það er rétt, við erum ólíkir flokkar. En við höfum staðið saman í gegnum miklar hremmingar með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Þetta krefst þess að hefja sig upp fyrir deilur og dægurþras, mætast á miðri leið með málamiðlunum og sátt. Þetta hefur sannarlega verið mikill prófsteinn og reynt á þolrif okkar allra, enda firra að ætla annað en að ágreiningur komi upp í samstarfi svo ólíkra flokka. Þrátt fyrir tilraunir stjórnarandstöðunnar til að reyna að kljúfa ríkisstjórnina með þessum hætti hefur það ekki enn tekist og mun ekki takast heldur í dag. Það er nefnilega þannig að flokkar geta starfað saman þrátt fyrir mótlæti, þrátt fyrir átök og ágreining en náð samt árangri.

Virðulegi forseti. Í boði Miðflokksins keppast stjórnarandstöðuflokkarnir hver við annan að marka sér sérstöðu vegna þessarar vantrauststillögu því að þeir eru ekki sammála um á hvaða forsendum eigi að styðja hana. Sömu flokkar og stóðu í forundran yfir þeirri ákvörðun að gefa út leyfi yfir höfuð, standa nú með og lýsa stuðningi við tillögu Miðflokksins sem einarðlega styður veiðar á langreyðum og byggir sína tillögu á því að ekki hafi verið nóg gert til að tryggja veiðar í sumar og kenna um málshraða.

Ég dreg þó ekkert af því að réttur þingheims til að lýsa vantrausti á ráðherra er grundvallaratriði í stjórnskipan okkar, enda er þingræðisreglan lykilþáttur í lýðræðisfyrirkomulaginu. Á sama tíma fylgir lýðræðislegum réttindum ábyrgð og það er vert að spyrja sig hvort sú ábyrgð sé best borin fram með þessum hætti. Þetta segi ég í ljósi þessarar þróunar sem hefur átt sér stað, að leggja fram vantrauststillögu á hendur einstaka ráðherrum í ríkisstjórninni í heild þegar tilgangurinn er í rauninni ekki að fella ráðherrann heldur ríkisstjórnina. Í sögulegu samhengi eru fá dæmi um þetta og bróðurpartur þeirra vantrauststillagna sem bornar hafa verið upp á ráðherra hefur komið fram á síðustu sex árum. Þetta er vandrataður vegur og ég ætla ekki að þykjast hafa öll svörin hvað þetta varðar en kalla eftir því að við sem þingmenn rækjum störf okkar af ábyrgð og af virðingu án þess að gengisfella þau lýðræðislegu úrræði sem við höfum með þessum hætti. En hingað erum við nú samt komin.

Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er var leyfi til hvalveiða gefið út til eins árs fyrir veiðitímabilið 2024. Ég lít svo á að ákvörðunin sé í betra samræmi við núgildandi lög og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem þeim er ætlað að innleiða, enda er þar gert ráð fyrir virkri stjórn og eftirliti með veiðunum. Reynsla síðasta sumars hefur sýnt okkur að erfitt er að bregðast við aðstæðum og breyta regluverki eða herða kröfur til hvalveiða þegar leyfi er í gildi. Í því tilliti koma dýravelferðarsjónarmið upp í hugann, enda sýndi eftirlit með veiðunum í fyrrasumar og mat fagráðs um velferð dýra svo ekki var um villst að gera þurfi betur í þeim efnum. Þá komu upp ákveðin álitaefni á borð við réttmætar væntingar, atvinnufrelsi og eignarrétt. Þau sjónarmið virðast síðan hafa verið yfirfærð á ákvörðun mín um að veita leyfi núna þrátt fyrir að eiga alls ekki við.

Leyfið nú hefði að hámarki verið gefið út til tveggja ára en þá rennur gildandi ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar út en samkvæmt lögum um hvalveiðar má ekki gefa út leyfi nema að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar. Það heildarveiðimagn sem ég legg til nú er innan þess hámarks sem stofnunin telur óhætt að veiða. Þá vil ég segja um ástæður þess að ekki er gefið út lægra veiðimagn að ég gaf út þann kvóta sem mér var rétt og skylt að gefa út að teknu tilliti til þeirra fjölmörgu sjónarmiða sem líta þarf til við ákvörðun um heildarveiðimagn á þessum lagagrundvelli.

Hvalveiðilögin voru sett á sínum tíma til að vernda hvalastofna fyrir ofveiði og heimildir ráðherra til að takmarka veiðimagn er fyrst og fremst tæki til þess. Aðrar ástæður geta hugsanlega verið málefnalegar eftir atvikum og aðstæðum hverju sinni. Við það vil ég bæta að leyfi er gefið út á grundvelli laga um hvalveiðar og það eru takmörk fyrir því að hve miklu leyti er hægt að byggja ákvörðun um það á grundvelli annarra laga, eins og ég nefndi hér áðan, um velferð dýra. Það er hins vegar ljóst að veiðarnar verða að fara í samræmi við lög og reglur og þar með talin lög um velferð dýra. Það var tilgangurinn með setningu reglugerðarinnar síðasta haust, að herða kröfur til veiðanna og tryggja að Matvælastofnun og Fiskistofa hefðu fullnægjandi heimildir til að bregðast við frávikum.

Þá er mikilvægt að hafa í huga að starfshópur sem þáverandi matvælaráðherra skipaði í febrúar síðastliðinn til að rýna lagaumgjörð hvala og eftir atvikum hvalveiðar er enn við störf og áætlar hann að skila vinnu sinni næsta haust. Ég taldi ekki rétt að gefa út leyfi til tveggja ára í ljósi þess að niðurstöður starfshópsins liggja ekki enn fyrir og ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort og þá hvernig verður brugðist við niðurstöðum hans.

Virðulegi forseti. Ég vil koma því að, sem er augljóst, að umsóknin hefur verið ríflega helmingi lengur í matvælaráðuneytinu heldur en ég sjálf. Það segir sig sjálft að ég hefði ekki getað afgreitt hana neitt hraðar en ég gerði, en mikið hefur verið látið með meðferð málsins og þann eðlilega tíma sem afgreiðsla leyfisins tók. Fyrir það fyrsta þá hafna ég því að meðferð málsins hafi brotið í bága við málshraðaregluna. Málið hefur verið í eðlilegum farvegi frá því að umsókn barst um mánaðamótin janúar/febrúar. Frá þeim tíma hefur ráðuneytið átt í samskiptum við umsækjanda, m.a. til að afla frekari upplýsinga sem nauðsynlegar voru til að rannsaka og afgreiða málið. Þá hefur samhliða verði unnið að ákvörðun um heildarveiðimagn en þessi mál verða ekki afgreidd aðskilin.

Ákvörðun um leyfisveitingu er ekki geðþóttaákvörðun sem ráðherra getur tekið að óathuguðu máli heldur verður að byggja hana á traustum grunni að undangenginni lögbundinni málsmeðferð og lögum þessa lands. Mér, sem á endanum ber ábyrgð á afgreiðslu erindisins, bar að vanda til þeirrar ákvörðunar sem ég gerði í hvívetna.

Álit umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar þáverandi matvælaráðherra síðasta sumar hefur gert málið enn flóknara með tilliti til þess hvaða ályktanir væri hægt að draga af því, t.d. hvaða þýðingu sjónarmið um velferð dýra og alþjóðlegar skuldbindingar gætu haft við ákvarðanatöku, og má jafnvel ganga svo langt að segja hana hafa leitt af sér ákveðna réttaróvissu. Þá var einnig sóst eftir og lagt mat á aðrar upplýsingar, svo sem frá umsækjanda og Hafrannsóknastofnun sem og umsagnir hagaðila vegna leyfisins. Þá skiptir eftirlitsskýrsla MAST máli en hún barst ekki fyrr en í lok maí en hún er sannarlega mikilvægt gagn við mat á því hvernig veiðarnar tókust til á síðasta sumar og jafnframt hvort þörf væri á viðbrögðum í regluverkinu vegna þeirra. Skýrslan bendir til þess að þær breytingar sem gerðar voru á síðasta veiðitímabili hafi skilað árangri hvað varðar dauðastríð langreyðanna. Allt þetta þarf að rannsaka til að vinna faglega og til þess að ákvörðunin sé lögmæt. Og eins og ég hef ítrekað komið inn á er afgreiðslutíminn í samræmi við fyrri afgreiðslu um leyfi, t.d. 2019, þrátt fyrir það aukna flækjustig sem ég hef hér lýst.

Virðulegi forseti. Þessi tillaga gefur ekki tilefni til afsagnar minnar. Hún gefur tilefni til þess eins að Spaugstofan snúi aftur og væri það vel, enda myndu handritin skrifa sig sjálf þessi misserin. Þetta skammhlaup Miðflokksins er til þess eins að sá efasemdarfræjum um stjórn þessa lands og draga úr trausti á stofnunum og stjórnsýslu að fyrirmynd erlendra lýðskrumsflokka, til þess eins að berja á ríkisstjórninni og á svona óábyrgan hátt. Ég hafna að sjálfsögðu lýðskrumi og segi þess vegna nei.