154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[11:39]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Í íslenskum stjórnmálum er sterk hefð fyrir því og hefur verið nær undantekningarlaus regla að ríkisstjórnir eru meirihlutastjórnir myndaðar með sáttmála milli stjórnarflokkanna sem hafa að baki sér meiri hluta þingmanna á Alþingi. Stjórnarmeirihluti þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr er skipaður af þingmönnum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Hæstv. ríkisstjórn situr því í umboði og í skjóli þessara flokka, ekki annarra. Samfylkingin hefur aldrei treyst ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar enda höfum við ekki á nokkrum tímapunkti átt aðkomu að þessari stjórn og kærum okkur ekki um, hvorki við myndun hennar né með samningum um stefnu eða störf hennar að öðru leyti. Við styðjum ekki hæstv. ríkisstjórn, við vantreystum henni og höfum alltaf gert, og þetta á við um ríkisstjórnina í heild sem og einstaka ráðherra. Það er okkar mat að hagsmunum Íslands væri best borgið ef sú ríkisstjórn sem nú situr færi frá og boðað yrði til alþingiskosninga þar sem þjóðin fengi valdið aftur í sínar hendur.

Hins vegar er það háð pólitísku mati hverju sinni hvort ástæða sé til að bera upp vantrauststillögu eða ekki, hvort sem hún beinist að ríkisstjórn í heild eða einstökum ráðherra. Þar hlýtur að ráða mestu hvort ástæða sé til að ætla að ríkisstjórn eða ráðherra sem um ræðir njóti ekki lengur trausts hjá meiri hluta þingheims og í ljósi þeirrar hefðar sem ég nefndi hér áðan, að ríkisstjórnir séu meirihlutastjórnir, þá þýðir þetta að vantrauststillaga er borin upp til þess að kanna hvort stjórnarmeirihlutinn á þingi haldi, hvort þingmenn stjórnarflokkanna styðji ríkisstjórnina eða ekki. Sú vantrauststillaga sem hér er til umræðu beinist að hæstv. matvælaráðherra. Hún er lögð fram af þingmönnum Miðflokksins en ég held að það þurfi ekki að koma neinum á óvart að þingmenn Samfylkingar munu greiða atkvæði með tillögunni vegna þess að við vantreystum ríkisstjórninni í heild sinni. Hún situr ekki í okkar umboði og við höfum aldrei stutt hana.

Forseti. Hver er staða þessarar ríkisstjórnar og hvernig hefur hún staðið sig? Það er gott að búa á Íslandi. Ísland er frábært land. Við erum velmegunarríki, ríkisstjórninni hefur blessunarlega ekki tekist að breyta því, en það blasir engu að síður við að þessari ríkisstjórn eru illa mislagðar hendur þegar kemur að stjórn efnahagsmála. Hún er búin að gata ríkissjóð að innan með ósjálfbærri ríkisfjármálastefnu, skeytir engu um árleg viðvörunarorð um að nú verði að stíga á bremsuna. Ríkisstjórnin heldur því fram að forgangsmál hennar séu að ná niður vöxtum og verðbólgu, en hver er árangurinn? Vextir hér eru einhverjir þeir hæstu á Vesturlöndum. Þeir eru kannski helst sambærilegir því sem gengur og gerist í stríðshagkerfi eins og Rússlandi. Það er stefnuleysi ríkisstjórnarinnar sem er ein meginástæða þess að Íslandi hefur gengið miklu verr að ná niður verðbólgu heldur en í löndunum í kringum okkur og hún er þrálátari hér.

Trúir því einhver hér inni annars að þessi staða, þessir háu vextir og þessi mikla verðbólga, þetta mikla ójafnvægi í hagkerfinu, hafi bara ekkert með það að gera að hér situr ríkisstjórn sem ætlar að reka ríkissjóð með halla níu ár í röð og getur ekki komið sér saman um aðgerðir til að koma jafnvægi á ríkisbúskap? Auðvitað hefur þetta áhrif, virðulegi forseti, bæði þetta og stefnurrekið almennt í efnahags- og atvinnumálum, vangetan til að forgangsraða. Þetta er auðvitað þenslu- og verðbólguvaldur númer eitt. Þá segja stjórnarliðar: Kaupmáttur hefur aukist. En staðreyndin er engu að síður sú að kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur dregist saman á síðustu sjö ársfjórðungum og fátækt — þetta skiptir máli — hlutfall þeirra sem eru undir lágtekjumörkum hefur farið hækkandi í tíð þessarar ríkisstjórnar. Þetta er sláandi staðreynd sem kemur fram í skýrslu frá forsætisráðuneytinu sem var unnin að beiðni þingsins og unnin af okkar færustu ójafnaðarsérfræðingum; lágtekjuhlutfallið hefur hækkað í tíð þessarar ríkisstjórnar og fátækt aukist í þessum skilningi. Þegar UNICEF gaf út skýrslu um barnafátækt í fyrra þá settu samtökin Ísland í annað sæti á eftir Bretlandi yfir ríki þar sem barnafátækt jókst mest á tímabilinu 2014–2021. Ísland var eitt af þeim ríkjum sem UNICEF snupraði sérstaklega fyrir að hafa ekki nýtt betur efnahagsuppgang síðustu ára til þess að bæta kjör barna og draga úr barnafátækt. Hvað segir þetta okkur um forgangsröðun þessara þriggja flokka?

Hvað með vaxtargetu Íslands til framtíðar? Við erum að dragast aftur úr þegar kemur að samkeppnishæfni atvinnulífs samkvæmt alþjóðlegum mælingum. Við erum eftirbátur Norðurlandanna í þessum efnum samkvæmt nýrri samkeppnishæfniúttekt IMD, viðskiptaháskólans í Sviss, um þetta er fjallað á forsíðu Morgunblaðsins í dag.

Hvað hefur gerst hér þegar kemur að verklegum framkvæmdum, t.d. á sviði orkumála og samgöngumála? Í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa framkvæmdir hafist við núll ný jarðgöng á Íslandi. Á sjö árum Framsóknarflokksins í samgönguráðuneytinu hafa ekki hafist framkvæmdir við svo mikið sem ein ný jarðgöng. Hér er staðan þannig í samgöngumálum að fjárfestingar eru sirka 0,5% af landsframleiðslu þegar meðaltalið í öðrum OECD-ríkjum er nær 1%.

Hvað með orkumálin? Frá því að ríkisstjórn þessara þriggja flokka tók við haustið 2017 hafa ekki hafist framkvæmdir við neina nýja virkjun, rafvirkjun með uppsett rafafl 10 MW eða meira, og ekkert virkjunarleyfi sem er í gildi hefur verið gefið út vegna nýrrar virkjunar. Þetta er staðan.

Er nema von að þeir flokkar sem skipa núverandi ríkisstjórn skammist sín fyrir afraksturinn og arfleifðina? Er nema von að þingmenn stjórnarflokkanna kjósi að tala og hegða sér eins og stjórnarandstöðuþingmenn frekar en stjórnarþingmenn sem bera ábyrgð á þeirri stefnu sem er rekin í landinu? Þetta er auðvitað pínulítið kómískt, virðulegur forseti, því að oftast er það stjórnarandstaðan sem er nöldrandi og leiðinleg. En nú hefur dæmið eiginlega snúist við. Það er stjórnarmeirihlutinn og þingmenn stjórnarmeirihlutans sem kveina eins og stunginn grís á hverjum einasta degi, kveina undan sjálfum sér, kveina undan hver öðrum, kveina í fjölmiðlum yfir því hvað allt er ómögulegt og erfitt. Þetta er að verða nær daglegur viðburður og ég held að fólkið í landinu sé orðið alveg dauðþreytt. Öllum til ama, engum til gagns — það verður grafskriftin hér og þannig eru störf þessarar ríkisstjórnar orðin á meðan það er stjórnarandstaðan sem leggur til lausnir og reynir að stappa stálinu í vesalings fólkið.

Eins og kom fram hér áðan þá styðjum við í Samfylkingunni þessa vantrauststillögu af því að við vantreystum ríkisstjórninni í heild sinni. En tölum samt aðeins um matvælaráðuneytið. Hvert í ósköpunum er erindi Vinstri grænna í þessu ráðuneyti? Hér var skipaður samráðshópur, einhver sá stærsti á byggðu bóli miðað við höfðatölu, undir yfirskriftinni Auðlindin okkar. Sú vinna virðist hafa fallið í grýttan jarðveg á stjórnarheimilinu og lítið til hennar spurst síðan. Hér er búið að hringla og vandræðast með hvalveiðar vegna þess að ráðherrar Vinstri grænna treysta sér ekki til að standa með sannfæringu sinni og mæla fyrir lögum um bann við hvalveiðum. Í staðinn eru bara lög brotin þvers og kruss og ríkinu jafnvel bökuð skaðabótaskylda. Samfylkingin er andvíg hvalveiðum en við gerum líka fortakslausa kröfu um góða stjórnsýslu og þessi stjórnsýsla matvælaráðherra Vinstri grænna hefur verið gjörsamlega óforsvaranleg.

Svo er það lagareldið, virðulegi forseti. Frumvarpinu var slátrað í dag þar sem hæstv. ráðherra hefur brugðist eftir margra ára vinnu, lagði í vor fram frumvarp sem var handónýtt og kvað á um ótímabundin nýtingarleyfi sem hefðu gefið firðina okkar til fyrirtækja í erlendri eigu í sjókvíaeldi (Gripið fram í.) um aldur og ævi, ótímabundin leyfi. Þvílíkur mislestur á þjóðinni, hvílík móðgun við fólkið í landinu. Hvernig datt fólkinu í hug að hér yrði einhver friður um þetta? Þetta atriði eitt og sér, það að mislesa þjóðina svona gjörsamlega þegar kemur að auðlindastjórn í landinu ætti eitt og sér að vera tilefni til vantrausts eða afsagnar. En auðvitað ætti bara öll ríkisstjórnin í heild að sjá sóma sinn í því að fara frá, (Forseti hringir.) gefa valdið aftur í hendur þjóðarinnar með því að boða til alþingiskosninga hið fyrsta.