154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[11:48]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Ég verð eiginlega að segja að þetta er sennilega að verða bara fastir liðir eins og venjulega, að við stöndum hér vegna þess að við erum að tala um vantraust, nú á sérstakan einstakan ráðherra, matvælaráðherra. Það er bara sagan endalausa. Ég get nú eiginlega þakkað hv. þm. Jóhanni Páli fyrir hans þrusuræðu hér á undan mér því að ég gæti ekki verið meira sammála en ég er.

Hvað er þingræði? Jú, það felur það í sér að enginn ráðherra í ríkisstjórn, eða ráðherrar, geti setið öðruvísi en í þökk meiri hluta Alþingis. Þar af leiðandi erum við, þegar við búum alltaf við meirihlutastjórnir eins og við gerum hér og nú, um leið í raun og veru að búa við algjört einræði. Það er með hreinum ólíkindum þetta ofríkiseinræði sem ég hef setið undir hér síðustu sjö árin á Alþingi Íslendinga. Og það er nákvæmlega sama hvað þetta einræðislið brýtur af sér, hvort það vinnur hér mjög svo óvandaða stjórnsýslu og virðir í rauninni stjórnsýslulög að vettugi eða hreinlega brýtur lög. Það er í rauninni eins og engin lög og engar reglur eigi að ná utan um þessa einstaklinga. Örfáir einstaklingar af tæplega 400.000 manna samfélagi ríða hér röftum og brjóta hér lög á báða bóga og fótumtroða stjórnsýslurétt og vandaða stjórnsýsluhætti.

Við eigum þó eitthvað sem heitir ráðherraábyrgð. Tvöföld er hún. Annars vegar er það hin pólitíska ábyrgð sem ráðherrum ber að virða og hins vegar stjórnsýsluleg ábyrgð. Það er ekki bara ég og við í stjórnarandstöðunni sem höfum komið auga á það hvernig í rauninni allt sem hér áður átti að heita lög og réttur og að hafa einhverja virðingu fyrir Alþingi Íslendinga — nei, það er öll þjóðin. Það er ekki einu sinni þriðjungur þjóðarinnar sem styður þessa handónýtu, verklausu ríkisstjórn sem er ekki einu sinni hægt að semja um þinglok við. Þannig að ég segi ekkert annað en það að ég bjóst ekki við því að skömmu eftir að ég hafði lagt hér fram vantrauststillögu á alla ríkisstjórnina, eftir að núverandi hæstv. forsætisráðherra braut lög, eins og allir vissu, og líka hæstv. fyrrverandi matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir — ég vissi ekki að þetta yrði sagan endalausa og hreinlega að við mættum búast við því að fá nýjan framhaldskafla einhverjum tveimur mánuðum seinna.

En við skulum velta því fyrir okkur: Hvað er næst, frú forseti? Hvað næst, þið 12 ráðherrar einræðisins? Hvað dettur ykkur í hug næst sem þvingar okkur til að stíga fram og veita ykkur það aðhald sem okkur ber skylda til að gera? Ef þið haldið það í eina mínútu að við horfum á það staurblind hvernig þið í rauninni sniðgangið og fótumtroðið hér verkin sem þið eigið raunverulega að vanda til vinnu við þá er það mesti misskilningur.

Við í Flokki fólksins styðjum heils hugar þessa vantrauststillögu. Ég tek undir með hv. þingmanni Samfylkingarinnar: Við í Flokki fólksins erum andvíg hvalveiðum. Það kemur þessu máli ekkert við. Við krefjumst vandaðrar stjórnsýslu. Við krefjumst þess að lögin gildi líka um æðstu ráðamenn þjóðarinnar eins og við hér, löggjafinn, ætlumst til að lögin gildi um alla landsmenn. Þið, hæstv. ráðherrar, eruð ekkert spes og um ykkur gilda lög eins og alla aðra. Það er slæmur bragur á því að senda þau skilaboð út í samfélagið, sem þið ætlist til að fylgi þeim lögum sem við setjum hér á Alþingi Íslendinga, að þau lög nái ekki um ykkur heldur bara um alla aðra.