154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:01]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég vil nú bara halda því til haga að hæstv. forsætisráðherra bar engin skylda til að eyða tíma þingsins hér í tíu mínútna fýluræðu. Hann hefði getað sleppt því að sóa tíma þingsins í hana. (Gripið fram í.)

En svo ég orði nú tillöguna: Píratar eru alfarið á móti hvalveiðum, forseti. Við styðjum því ekki þessa tillögu á þeim forsendum sem flutningsmenn tillögunnar leggja upp með heldur vegna þeirrar djúpstæðu sannfæringar okkar að hvalveiðar séu aldrei réttlætanlegar. Hvalveiðar eru ómannúðlegar, óarðbærar og óverjandi. Einmitt þess vegna hafa Píratar lagt fram, ásamt þingmönnum Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, frumvarp um bann við hvalveiðum. Frumvarpið hefur fengið um 3.500 umsagnir sem sýnir hversu mótfallin íslenska þjóðin og fjöldinn allur af erlendum aðilum er hvalveiðum. Við Píratar erum einmitt ekki bara á móti hvalveiðum af því að okkur finnst siðferðislega rangt að veiða hvali, sem er þó grundvallarforsenda fyrir því að við lögðum fram þetta frumvarp í haust, heldur höfum við líka miklar áhyggjur af viðhorfi fólks erlendis til hvalveiða og hvaða áhrif veiðarnar hafa á orðspor Íslands og efnahag. Má þar nefna kvikmyndaiðnaðinn og sölu annarra sjávarútvegsauðlinda.

Stuðningur Pírata, sem ég vil taka fram að eru ekki flutningsmenn þessarar tillögu, við vantraust á matvælaráðherra er vegna þess að við erum hörð í andstöðu okkar við hvalveiðar. Núverandi ríkisstjórnarsamstarf hangir m.a. saman á samkomulagi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna um dráp á hvölum. Það þýðir ekkert fyrir VG að barma sér yfir samkomulagi sem þau sjálf gerðu. Þau eru í ríkisstjórn á þeirri forsendu að hvalveiðar verði áfram stundaðar á Íslandi. Og það er vegna þessa samkomulags sem matvælaráðherra hefur nú heimilað hvalveiðar, sama samkomulag og kemur í veg fyrir að frumvarp Pírata um bann á hvalveiðum hljóti framgang hér á þinginu. En þingmenn og ráðherrar VG kvarta síðan sáran yfir því að þau geti ekki annað en heimilað hvalveiðar á grundvelli gildandi laga, þeim séu bara öll sund lokuð.

Þetta er bara ekki sannleikanum samkvæmt, virðulegi forseti. Svona tal grefur undan þinginu og málar löggjafann upp sem lítið annað en viljalaust verkfæri í höndum framkvæmdarvaldsins, því að besta leiðin til að útkljá þetta mál er auðvitað með lagabreytingu hér á Alþingi. Píratar styðja því vantraust á ráðherra. Við vantreystum ríkisstjórninni allri og við treystum að sjálfsögðu ekki ráðherra sem heimilar hvalveiðar fyrir hádegi en segir svo eftir hádegi að hún og hennar flokkur vilji allt til þess vinna að banna hvalveiðar. Matvælaráðherra bar líka engin skylda til þess að gefa út hvalveiðikvóta. Hún gerði það bara samt.

Síðast árið 2007 og 2008 ákvað þáverandi sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðisflokksins, Einar K. Guðfinnsson, að enginn hvalveiðikvóti yrði gefinn út. Af því tilefni sagði hann, með leyfi forseta:

„Ég mun ekki gefa út nýjan kvóta fyrr en markaðsaðstæður fyrir hvalkjöt hafa batnað og leyfi fæst til að flytja hvalaafurðir til Japans. […] Hvalveiðiiðnaðurinn, líkt og allur annar iðnaður, verður að [lúta] lögmálum markaðarins. Ef það er enginn hagnaður af starfseminni þá eru engar forsendur fyrir því að halda áfram að drepa hvali.“

Ráðherra Sjálfstæðisflokksins gat stöðvað drápin einfaldlega vegna þess að engar forsendur voru fyrir því að halda þeim áfram.

Forseti. Það er heldur ekki sjálfsagt að fyrirtæki sem endurtekið brýtur reglur sé með veiðileyfi í áskrift. Hæstv. ráðherra segir að sagan skipti máli, að hefðir skipti máli. Það hlýtur að skipta einhverju máli að eina fyrirtækið sem stundar hvalveiðar á Íslandi var sektað fyrir brot á dýraverndarlögum nú síðast í sumar. Sama fyrirtæki hefur oft og mörgum sinnum starfað á undanþágu frá starfsleyfi. Í fyrra fékk fyrirtækið enn einu sinni undanþágu frá starfsleyfi vegna olíuvarna, þ.e. að þær væru ekki nægar, og í mörg ár þótti í lagi að Hvalur hf. gerði að hvölum undir berum himni þrátt fyrir að það yrði aldrei leyft í öðrum matvælaiðnaði, aldrei. Matvælaráðherra sem lætur þetta viðgangast geta Pírata ekki treyst. Og höfum það á hreinu: Vinstrihreyfingin – grænt framboð getur ekki haldið því fram að með því að leyfa hvalveiðar, eins og þau hafa nú gert, sé einhvern veginn tekið skref í rétta átt að banni við hvalveiðum. Í raun hafa öll skref sem þau hafa tekið í þessu máli, bæði núverandi matvælaráðherra og sá fyrri, verið til þess fallin að gera það erfiðara frekar en auðveldara að banna hvalveiðar. Vinstri græn hafa tvisvar sinnum farið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn og það er staðfest að Vinstri græn sömdu frá sér bann við hvalveiðum í síðustu stjórnarmyndunarviðræðum. Það ætti að sýna landsmönnum, sérstaklega kjósendum Vinstri grænna, hversu neðarlega bann við hvalveiðum er á forgangslista flokksins.

Forseti. Hæstv. matvælaráðherra segir að hún hafi ekki getað annað en að leyfa hvalveiðar, m.a. vegna hefða og venja, og að hún yrði að fara eftir lögum. Formaður Vinstri grænna, hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, sagði, með leyfi forseta:

„Þetta er ákvörðun sem hún tekur í samræmi við eitthvað sem hún verður að gera. Hún verður að gefa út leyfið samkvæmt stjórnarskrá. […] Auðvitað er mín pólitíska skoðun sú að við eigum að hætta hvalveiðum á Íslandi.“

Svo hélt hann því fram í beinu framhaldi að þetta væri skref í rétta átt, eins og fyrr segir.

En við skulum halda því til haga, virðulegi forseti, að þegar Einar K. Guðfinnsson gaf ekki út kvóta mat enginn það sem svo að hann væri að brjóta lög. Að gefa út kvóta er ákvörðun ráðherra, oftast byggð á ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar en þarf þó ekki að vera það. Ráðherra gat tekið ákvörðun um að gefa ekki út kvóta en hún þorði ekki að gera það. Píratar styðja að sjálfsögðu vantraust á matvælaráðherra sem heimilar hvalveiðar af hræðslu við að missa stólinn.