154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:10]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Það dylst auðvitað engum, hvorki í þessum sal né úti í samfélaginu, að þessi vantrauststillaga, sem Miðflokkurinn hefur lagt fram á hendur hæstv. matvælaráðherra, er djúpstæðari en svo að hún snúist eingöngu um hvalveiðar, að hún snúist eingöngu um afstöðu einstakra flokka, Miðflokksins eða annarra, til hvalveiða. Alveg óháð því hvaða skoðun við sem sitjum hér kunnum að hafa á tiltekinni atvinnustarfsemi, hvalveiðum þar á meðal, þá er það auðvitað ekkert annað en sjálfsögð og eðlileg krafa að við, af öllum, búum svo um hnútana að þau fyrirtæki sem á annað borð mega starfa hér á Íslandi búi við einhvern fyrirsjáanleika. Enginn atvinnurekstur á að þurfa að lifa við þann hringlandahátt og þá óvissu sem hefur gegnsýrt stjórnsýslu málsins frá upphafi í meðförum ráðherra ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna.

Svo er það stóra samhengið sem snýr auðvitað að því að þetta einstaka mál er ekkert annað en birtingarmynd þess sleifarlags og loðmullu sem hefur einkennt flest úrlausnarefni þessarar ríkisstjórnar frá því að til hennar var stofnað, sleifarlags sem má rekja til innbyrðis sundurlyndis sem gegnsýrir nálgun ríkisstjórnarflokkanna í ólíklegustu málum, sundurlyndis sem gerir þeim einfaldlega of oft ókleift að klára verkefni sín með sóma, eins og þetta mál snýst um. Við sitjum ekki bara uppi með rangstæðan ráðherra, frú forseti. Við sitjum uppi með ríkisstjórn sem er að spila á allt öðrum velli en íslenskt samfélag og á einfaldlega heldur lélegan leik. Það eru einstaka sólósprettir en það er hending að reynt sé að gefa boltann á samherja.

Áskoranir í samgöngumálum, menntamálum, heilbrigðismálum og efnahagsmálum, að ekki sé talað um vörumerki þessarar ríkisstjórnar, sturlaða vaxtaáþján, sem er að sliga mörg heimili og fyrirtæki landsins — allt þetta fellur oft, allt of oft, í skuggann fyrir innbyrðis átökum stjórnarliða. Ríkisstjórnin rís einfaldlega ekki undir ábyrgð sinni og það er staðreynd sem er löngu orðin landsmönnum ljós. Ég leyfi mér að fullyrða að það er leitun að þeim sem ekki sjá að þingmenn stjórnarandstöðunnar geta ekki annað en stutt vantraust á ráðherra í slíkri ríkisstjórn.

Þingflokkur Viðreisnar er á græna takkanum.