vantraust á matvælaráðherra.
Virðulegi forseti. Sú vantrauststillaga sem við ræðum hér er auðvitað ekkert annað en pólitískt vindhögg, pólitískt leikrit. Er það virkilega orðið svo að hv. þingmenn stjórnarandstöðu sjái það sem eitthvað léttvægt að leggja fram vantrauststillögu á ráðherra? Að hv. þingmenn Miðflokksins, stjórnmálaflokks sem er yfirlýstur stuðningsaðili hvalveiða, skuli leggja fram vantrauststillögu á ráðherra á grundvelli þess að hún hafi einmitt leyft hvalveiðar finnst mér óskiljanlegt. Hvers lags upphlaup er þetta eiginlega? Miðflokkurinn velur að kasta ryki í augu almennings með þessari leiksýningu sem við verðum nú vitni að. Átakanleg málefnaþurrð Miðflokksmanna brýst fram á lokametrum þessa þingvetrar með þessum hætti og undir það taka aðrir stjórnarandstöðuþingmenn. Það vekur nefnilega furðu að þingflokkur Miðflokksins hafi teymt hina flokkana í stjórnarandstöðu með sér í þennan leiðangur, flokka sem segjast vera stjórntækir og ýmislegt fleira því að þeir virðast ekki sammála um á hvaða grunni þeir byggja afstöðu sína, stjórnarandstöðuflokkarnir. Hv þingmaður Miðflokksins segir að þetta beinist gegn ráðherranum. Aðrir hv. þingmenn segja þetta snúast um ríkisstjórnina. Og um hvað snýst þetta þá? Um fáránleika.
Ég held að fólk almennt vilji að við sem njótum þeirra forréttinda að vinna fyrir fólkið í landinu, erum þjóðkjörnir fulltrúar almennings, forgangsröðum þjóðinni til heilla, að við vinnum fyrir fólkið í landinu. Ég held að við reynum þetta öll og því er þessi tilhæfulausa vantrauststillaga sem hér er fram komin mikil vonbrigði og eiginlega lítilsvirðandi fyrir Alþingi.
Virðulegi forseti. Hvalveiðar hafa verið í deiglunni undanfarin misseri. Sem kunnugt er frestaði þáverandi hæstv. matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, vertíðinni sumarið 2023 vegna álits fagráðs um dýravelferð. Sú ákvörðun var byggð á málefnalegum sjónarmiðum um dýravelferð og til að koma í veg fyrir dýraníð. Vertíðin hófst svo í september síðastliðnum, að undangenginni endurskoðun á reglugerð um veiðarnar, þar sem skilyrðin voru hert einmitt til þess að auka dýravernd og til að auka dýravelferð. Nýtt leyfi var gefið út núna 11. júní síðastliðinn af núverandi matvælaráðherra.
Í málflutningi sínum hafa hv. þingmenn Miðflokksins gert því skóna að afgreiðslutími þess hvalveiðileyfis sem hæstv. matvælaráðherra hefur nú gefið út hafi verið óeðlilega langur. Því fer auðvitað fjarri enda hefur afgreiðsla málsins verið í eðlilegum farvegi í ráðuneytinu. Ákvörðun um leyfisveitingu er ekki geðþóttaákvörðun heldur verður ráðherra að byggja ákvörðun sína á lögum og að vandlega athuguðu máli og það hefur hæstv. matvælaráðherra gert. Ég vek líka athygli á því, ágæti þingheimur og virðulegi forseti, að hæstv. matvælaráðherra hafði einungis verið í embætti í tvo mánuði þegar hún gaf út leyfið og það getur ekki talist langur tími til leyfisveitingar.
Gildistími hvalveiðileyfisins hefur líka komið til tals en hæstv. matvælaráðherra gaf, sem kunnugt er, út leyfi til eins árs og fyrir því eru ýmsar ástæður sem hún hefur rökstutt, m.a. að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar gildi einungis til ársins 2025 og því hafi að hámarki komið til greina að veita leyfi til tveggja ára. Leyfi til eins árs tryggir hins vegar betur virka stjórn og eftirlit með veiðunum sem Íslendingar hafa undirgengist með alþjóðlegum skuldbindingum. Sé litið til sögu hvalveiða má einnig geta þess að lengst af voru leyfi aðeins veitt til eins árs í senn, þannig að ég skil ekki alveg æsinginn út af þessu.
Ég vil líka nefna að hæstv. matvælaráðherra fór eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um fjölda dýra sem leyfilegt er að veiða. Ráðgjöfin veitir ramma um það sem heimilt er að veiða og það sem er innan þess ramma er í samræmi við löggjöfina. Allt þetta, allt þetta, virðulegi forseti, hefur hæstv. matvælaráðherra útskýrt mjög vel.
Virðulegi forseti. Ég vil vera alveg skýr hér. Við Vinstri græn erum andvíg hvalveiðum og ég vona það innilega að við Íslendingar berum gæfu til þess sem allra fyrst að banna hvalveiðar fyrir fullt og allt. Ég vil líka að vera mjög skýr með það að allar ákvarðanir sem teknar hafa verið á þessu kjörtímabili um hvalveiðar af hæstv. matvælaráðherrum Vinstri grænna hafa verið faglegar, vel ígrundaðar og lögum samkvæmt. Ekkert samkomulag var gert á milli stjórnarflokkanna um hvalveiðar og hefur aldrei verið gert. Fullyrðingar um annað eru einfaldlega rangar. Hæstv. matvælaráðherra, sem vantrauststillaga þessi sem nú er rætt um beinist að, hefur tekið ákvarðanir á faglegum grunni. Hún hefur byggt á lögum og hún hefur ítrekað gert grein fyrir embættisfærslum sínum. Embættisfærslurnar gefa ekkert, nákvæmlega ekkert tilefni til vantrausts á störf ráðherrans.
Virðulegi forseti. Þessi vantrauststillaga er ættuð úr leikhúsi fáránleikans. Þetta er pólitískt leikrit þar sem Miðflokksmenn eru í aðalhlutverki og aðrir stjórnarandstöðuþingmenn eru í aukahlutverki. Ég myndi frekar kjósa að ræða önnur og brýnni mál hér í dag. Ef ég hefði svona mikinn áhuga á leiksýningum, sem ég reyndar hef, þá myndi ég kannski bara láta mér duga að hlusta á vikulegan hlaðvarpsþátt Miðflokksmanna, Sjónvarpslausa fimmtudaga. Þar gæti ég gert eins og karlinn í sveitinni heima þegar útvarpið var nýkomið til og hann var spurður: Hvað er nú það besta við útvarpið? Þá sagði hann: Tja, það er nú að það er hægt að loka fyrir það. Eða, hæstv. forseti, erum við kannski bara komin með þingfundalausan fimmtudag þar sem formaður Miðflokksins er ekki á þinginu í dag?
Það eru ýmsar spurningar sem vakna um þessa vegferð Miðflokksins (Forseti hringir.) en ég hvet þingheim til að fella vantrauststillöguna og snúa sér að öðrum brýnni verkefnum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)