vantraust á matvælaráðherra.
Frú forseti. Ég verð fyrst að vekja athygli á því að starfandi formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs brigslaði hér rétt í þessu samstarfsmönnum sínum í ríkisstjórn um að fara með fleipur hvað varðar það sem rætt var við myndun ríkisstjórnarinnar 2021 og sneri að hvalveiðimálum. En báðir hæstv. ráðherrar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, töluðu hér um þetta græfi undan trausti og þetta græfi undan virðingu þingsins það sem við ræðum hér í dag. Það sem grefur undan virðingu þingsins eru auðvitað þau viðvarandi lögbrot og sú stjórnsýsla sem viðhöfð hefur verið í þessu máli og svo mörgum öðrum. Það er það sem er að grafa undan virðingu þingsins, við skulum ekkert velkjast í neinum vafa um það.
Ég verð síðan að bregðast við nokkrum atriðum sem hæstv. matvælaráðherra kom inn á. Það er auðvitað mikil sögufölsun að leggja að jöfnu tímalínuákvarðanir ráðherra núna við það sem gerðist árið 2019 þegar allt önnur staða var uppi og það er bara hreinlega fráleitt af hæstv. ráðherra að reyna að nota það sem vörn í þessu máli. Það athæfi ráðherra að fara svona sterklega eða svona að miklu leyti gegn ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, okkar rannsóknar- og ráðgjafarstofnunar í þessum efnum, hlýtur að skoðast sem einhvers lags stefnumarkandi ákvörðun. Þá hlýtur maður að spyrja: Hvað næst? Hvaða stofn sem við nýtum hér landið um kring verður næst undirorpinn þessum tilviljanakenndu, gerræðislegu ákvörðunum ráðherra Vinstri grænna?
Hæstv. fjármálaráðherra, sagði hér áðan: Af hverju var ekki málið rætt á öðrum forsendum? Ég sjálfur reyndi að eiga samtal við hæstv. matvælaráðherra um þetta í fyrirspurnatíma. Ráðherra fór eins og köttur í kringum heitan graut og svaraði helst engu, það var ekki hægt að lesa neitt annað út úr svörum ráðherrans en að sérfræðingar ráðuneytis hennar sjálfrar hefðu ekki ráðlagt ráðherranum að gefa út leyfi til eins árs. Og það er eitthvað sem hagaðilar hafa óskað eftir gögnum um frá því að þetta kom fram en ekki fengið afhent. (Forseti hringir.) Það liggur fyrir að það þarf ekki að fara í Þjóðskjalasafnið til að leita að þeim minnisblöðum sem lögð voru (Forseti hringir.) fyrir hæstv. ráðherra í þessum efnum.