154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:22]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Staðan í íslenskum stjórnmálum er flókin. Það eru átta flokkar á Alþingi og dreifing þingsæta er óhjákvæmilega mikil. Þetta kallar á málamiðlanir, afleiðingar sem margir flokksmenn verða síðan ósáttir við. Þessar aðstæður hafa ríkisstjórnarflokkarnir búið við í sjö ár og það þarf þrautseigju við slíkar aðstæður til að koma málum áfram. Árangurinn er um margt alveg ótrúlegur, sérstaklega ef litið er til áfalla samfélagsins. Það er mikill árangur í margvíslegum þáttum. Ég vil nefna alveg sérstaklega núna hvaða árangri við erum að ná í útlendingamálum og löggæslumálum. Tímabundin glíma við efnahagsmál þar sem árangurinn til lengri tíma segir mjög góða sögu. Staða ríkissjóðs er sterk og kaupmáttur sömuleiðis og staða heimila og fyrirtækja. Árangur í baráttu við verðbólgu og háa vexti er í augsýn.

Vandamál þjóðarinnar hafa verið í gegnum tíðina fábreyttir atvinnuvegir, verðmætasköpun, en það hefur náðst ótrúlegur árangur hjá okkur í því sem við byggjum á sjálfbærri nýtingu auðlinda okkar. Stofunum hefur fjölgað. Það hafa komið inn nýjar greinar eins og ferðaþjónusta og hugverkaiðnaður, sem er gríðarlega mikilvægt. Vöxtur nýrra stoða þarf aftur á móti ekki að vera á kostnað annarra. Við þurfum á öllu okkar að halda.

Umræða talsmanna ákveðinna atvinnugreina er allt að því óviðeigandi þegar þeir tala um að leggja niður starfsemi í þeirra þágu og því fylgja órökstuddar fullyrðingar. Við eigum að standa saman fyrir fjölbreyttari atvinnu- og verðmætasköpun í landinu. Það er líka hrópandi þekkingarleysi þingmanna og ráðherra sem með geðþóttaákvörðun vilja banna atvinnugreinar. Atvinnufrelsi er tryggt í stjórnarskrá og bann gengur í berhögg við réttindi fólksins nema ríkir almannahagsmunir liggi til grundvallar. Það er mjög frjálslega fjallað um þetta hér í ræðustól Alþingis og það er ekkert í þessari atvinnugrein sem augljóslega liggur því til grundvallar að geta talist ríkir almannahagsmunir.

Framkoma ráðherra Vinstri grænna er fordæmalaus í þessu máli. Hagsmunum alþýðunnar, starfsfólks og fyrirtækja er fórnað á altari málstaðar sem engar forsendur eru fyrir. Stjórnarskrárvarin réttindi starfsmanna og fyrirtækja fótumtroðin með fordæmalausum hætti. Það er hægt að spyrja: Hvað næst? Tilgangurinn virðist helga meðalið. Eftir sneypuför fyrrverandi ráðherra í fyrra, skýra niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, eindregnar ráðleggingar sérfræðinga ráðuneytisins hefði maður haldið að fólk sæi að sér. Aðgerðir og aðgerðaleysi núverandi ráðherra er alvarlegra fyrir bragðið. Í rökstuðningi ráðherra blasir síðan við blekkingaleikur, til að mynda það að réttlætingin sé að Kristján Þór Júlíusson hafi veitt leyfi í júlí 2019, mörgum mánuðum eftir umsókn, þegar hið rétta er að Kristján Þór Júlíusson, hæstv. ráðherra á þeim tíma, gaf út reglugerð um hvalveiðar 19. febrúar það sama ár og þá lá auðvitað fyrir að leyfið yrði gefið út. Það þurfti síðan ekki á leyfinu halda. Það lá ekkert á því vegna þess að það átti ekki að stunda hvalveiðar þetta ár. Svona blekkingaleikur er hugsaður til þess að villa um fyrir fólki.

Það sama á við um ákvörðun ráðherrans um fjölda dýra. Þar er ekki farið að ráðleggingum okkar virtustu vísindamanna sem leggja til að 160 dýr verði veidd, sem er 0,4% af áætluðum 40.000 dýrastofni hér við landið, vel innan allra sjálfbærnimarka. En enn skal reynt að leggja stein í götu atvinnugreinarinnar. Það er slæmt þegar málflutningur er svo umvafinn blekkingum, kannski til að villa um fyrir almenningi og þingheimi.

Forseti. Við þessar aðstæður kemur það mér ekkert sérstaklega á óvart að það skuli borið fram vantraust á ráðherra. Málið er það alvarlegt og hefur það víðtæk áhrif á stóran hóp fólks, starfsfólks og fyrirtækja í þessu landi og sérstaklega á ákveðnu landsvæði.