154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:26]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M):

Virðulegur forseti. Ég vil hér við lok þessarar umræðu þakka þeim sem tóku þátt í henni. Það mun koma mér mjög á óvart ef atkvæðagreiðsluspjaldið hér í salnum, þegar atkvæðagreiðslu er lokið á eftir, verður þannig að það verði eingöngu stjórnarandstæðingar sem hafa greitt vantrauststillögunni atkvæði sitt. Og þá er ég bara að horfa til þess sem ýmsir hv. þingmenn hafa sagt undanfarna 12 mánuði og sérstaklega núna eftir að þessi nýjasta ákvörðun matvælaráðherra liggur fyrir, hvaða orð hafa fallið. Ég hvet þingmenn Norðvesturkjördæmis sérstaklega til að hugsa sinn gang og auðvitað vil ég sérstaklega hvetja vini mína í þingflokki Sjálfstæðisflokksins til að hugsa sinn gang því að öll þurfum við að geta horft í spegilinn á morgun. Ég hvet hv. þingmenn til að greiða atkvæði með þessari vantrauststillögu. Framganga hæstv. matvælaráðherra hefur verið forkastanleg, óverjanleg í raun, í þessu máli og þá skiptir engu máli það sem hæstv. forsætisráðherra kom inn á hér áðan um það hversu stuttan tíma ráðherrann hefði dvalið í stól sínum. Ráðherrann hefur nýtt tímann sem ráðherrann hefur haft þar alveg hreint ótrúlega vel til að fara á svig við lög og reglur. Á því eru þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að taka ábyrgð ef vantraustið verður fellt hér á eftir.