154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:28]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það er eiginlega hægt að orða þetta þannig að þetta er óttalegt lýðskrum sem hér hefur átt sér stað. Hér eru fullyrðingar um alls konar lögbrot, hvort sem það er á stjórnarskránni eða stjórnsýslumeðferð eða að búa til ótta um að skattgreiðendur megi eiga von á að þurfa að borga heilmikla fjármuni vegna ákvarðana ráðherra. Þetta er allt saman úr lausu lofti gripið. Það er hvergi nokkurs staðar til neitt um það eins og hér hefur verið nefnt, þannig að hér eru menn að tala dálítið mikið út í loftið. Það er auðvitað áhugavert, eins og ég sagði í fyrri ræðu minni, að Miðflokkurinn er hér með þessa tillögu af því að leyfið er ónýtanlegt, Píratar af því að það var veitt leyfi, Viðreisn, Flokkur fólksins og Samfylkingin bara af því að ríkisstjórnin er svo ómöguleg. Þannig að þetta er ekkert annað en lýðskrum að nýta þennan þó mikilvæga rétt til þess að gera þetta með þessum hætti.

Ég vil bara halda því til haga að ég fékk ráðleggingar, eins og ég svaraði hv. þingmanni á dögunum. Og það var ekki bara ein ráðlegging heldur hefur ráðherra val um það hvaða leiðir er hægt að fara, hversu löng leyfin geta verið. Og í þessu tilfelli gat ég valið um það hvort það væru eitt eða tvö ár og ég er búin að rökstyðja það hvers vegna það var bara til eins árs.

Varðandi leyfið frá fyrrverandi hæstv. ráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, vil ég segja að reglugerðin var sannarlega sett í febrúar en umsóknin kom nú samt ekki fyrr en seint í mars. Ef hann hefur haft hugmyndir um að það ætti bara ekkert að veiða þetta árið þá eru alla vega engin gögn í ráðuneytinu sem styðja það, bara svo því sé haldið til haga. Og það er kannski eitt af því sem má segja um stjórnsýslu þessa málaflokks til allt of margra ára, að það hefur ekki verið nógu gott utanumhald þar, því miður.