154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Eins og reikna mátti með þá mun ég greiða atkvæði með þessari vantrauststillögu. En ég vil bara nota þetta tækifæri og segja það enn einu sinni hér: Sú stjórnsýsla sem viðhöfð hefur verið í þessum málaflokki undanfarið, og ég ítreka það sem ég sagði í framsöguræðu minni, er samfelld saga ólögmætis og steininn tekur úr nú undir stjórn núverandi hæstv. matvælaráðherra. Ég hvet hv. þingmenn til að greiða þessari ályktun atkvæði sitt, styðja við vantraustið sem hér er lagt fram því að það er auðvitað á ábyrgð þeirra sem verja þessi vinnubrögð að standa frammi fyrir þeim hlut til framtíðar gagnvart sínu kjördæmi, gagnvart sínum kjósendum. — Þingmaðurinn segir já.