vantraust á matvælaráðherra.
Virðulegur forseti. Við ræðum vantraust sem byggir á misbeitingu valds. Það verður reyndar að taka fram að afstaða þeirra sem vilja banna og tala hér um að banna ákveðna atvinnustarfsemi er engu betri en þess sem þau saka nú um misbeitingu valds. Það er eðlileg krafa að ráðherra víki úr embætti við slíkar aðstæður ef rétt reynist. Ábyrgðin liggur þó fyrst og fremst hjá þingflokki þess sem ráðherrann situr í umboði fyrir. Flókin staða hjá þingflokki VG í þeim efnum. Tveir af þremur ráðherrum eru þegar með hæstaréttardóm á bakinu fyrir að brjóta á réttindum sveitarfélaga og almennings og nú má segja að fleiri dómar séu væntanlegir. Staðreyndin er augljóslega sú að stjórnmálaflokkur sem styður og lætur vinnubrögð átölulaus á kannski takmarkað erindi á Alþingi Íslendinga.
Virðulegur forseti. Það eru viðsjárverðir tímar í íslenskri pólitík og ábyrgðarhluti að rjúfa ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra á þessum degi. Ég treysti forsætisráðherra og mörgum ráðherrum ríkisstjórnarinnar og ég greiði því ekki atkvæði.