154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:37]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Á mjög fjölmennum flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í ágúst á síðastliðnu ári viðurkenndi ég að það hefðu verið mistök hjá okkur Sjálfstæðismönnum að samþykkja að atvinnuvegaráðuneytið væri í höndum Vinstri grænna. Ég er enn þá þeirrar skoðunar. En eftir að hafa setið í þingsal og hlustað á þann málflutning stjórnarandstöðunnar og málatilbúnað, ef málatilbúnað skyldi kalla, þá get ég aldrei slegist í lið með slíku fólki. Ég mun aldrei vera í liði með þeim sem reyna að fella ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Ég mun þegar ég vakna í fyrramálið líta glaður í spegil og nokkuð sáttur við sjálfan mig eftir að hafa sagt nei.