vantraust á matvælaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að hæstv. matvælaráðherra hafi veitt leyfi til hvalveiða. Ég var hins vegar afar ósátt við þá ólögmætu ákvörðun fyrrverandi hæstv. matvælaráðherra að fresta hvalveiðum með þeim afleiðingum sem það hafði á fjárhag Hvalfjarðarsveitar og nærsamfélags en ekki síður á fjárhag margra fjölskyldna sem treystu á þær tekjur sem af veiðunum verða. Sú töf sem varð á ákvörðun hæstv. matvælaráðherra hefur áhrif á veiðitímabilið sem nú er í tvísýnu. Fyrir liggur að fyrirtækið sem á í hlut hér, Hvalur hf., er að leita réttar síns og rétt er að láta það mál ganga sinn veg í réttum farvegi áður en felldir eru dómar úr pontu Alþingis. Sú vantrauststillaga sem hér er lögð fram er aðeins pólitískt leikrit og til þess fallin að tefja fyrir þeim mikilvægu málum sem liggja fyrir í þinginu við þinglok. Því styð ekki þessa vantrauststillögu. — Ég segi nei.