154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

vantraust á matvælaráðherra.

1162. mál
[12:40]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég segi já við þessari tillögu. Ég vildi koma því að hér í þessari umræðu — vegna þess að hér hafa stjórnarliðar hneykslast mikið á því að sumir þingmanna hér telji vantraust sitt á ríkisstjórninni nægja til þess að styðja þessa vantrauststillögu. Ég rifja bara upp fyrir hv. þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem felldu vantrauststillögu á hendur ráðherra Sjálfstæðisflokksins með þeim rökum að vantrauststillaga á hendur þess ráðherra væri vantrauststillaga á hendur ríkisstjórnarinnar allrar og þar af leiðandi neyddust þau til að verja ráðherrann falli. Ég vildi bara minna á þetta vegna þess að það eru fleiri í þessu herbergi sem væri hægt að saka um pólitískt leikrit. (BLG: Heyr, heyr.)

(Forseti (BÁ): Þingmaðurinn segir?)

Þingmaðurinn segir já.