vantraust á matvælaráðherra.
Herra forseti. Ég segi já við þessari tillögu en kveð mér hér hljóðs til að bregðast við því að hv. formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er hér að saka fólk um að fara með rangar fullyrðingar þegar fólk er ósköp einfaldlega að vísa í orð formanns Sjálfstæðisflokksins. Fyrir ári sagði í frétt RÚV, með leyfi forseta:
„Bjarni segir hvalveiðar hafa verið ræddar sérstaklega við myndun ríkisstjórnarinnar. Þar hafi verið rætt hvort flokkarnir gætu verið sammála um að stöðva hvalveiðar en um það hafi þau ekki getað sammælst.“
Þetta var rætt og þetta varð niðurstaðan. Þetta var niðurstaðan sem Vinstri græn samþykktu sem hluta af stjórnarmyndun 2021. Það er engin ástæða fyrir formann Vinstri grænna að grugga umræðuna með því að saka fólk um rangmæli þegar það er hann sem er að ljúga upp á forsætisráðherra. (Forseti hringir.) Flokkur sem vill banna hvalveiðar (Forseti hringir.) er ekki flokkur sem leiðir þær oftar en nokkur annar flokkur (Forseti hringir.) og er ekki heldur flokkur sem samþykkir stjórnarsáttmála þar sem er búið að ákveða að banna ekki hvalveiðar. Vinstri græn þurfa að átta sig (Forseti hringir.) á því að þó að það standi í stefnunni að þau séu á móti hvalveiðum þá er ekkert í aðgerðum þeirra sem sýnir það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)