Flutningur höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Virðulegur forseti. Ég er hingað kominn til að flytja munnlega skýrslu um flutning höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar. Hún er nú staðsett í Garðabæ en ákveðið hefur verið að höfuðstöðvar stofnunarinnar verði á Vesturlandi. Nánari staðsetning höfuðstöðvanna verður hins vegar ákveðin í samráði við forstöðumann stofnunarinnar og í samráði við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Sömuleiðis geri ég ráð fyrir því að menn leiti til Byggðastofnunar þegar við förum í þessa vegferð, sem við erum að fara í.
Þann 14. maí síðastliðinn samþykkti Alþingi ný lög sem kveða á um sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, RAMÝ, í eina stofnun, Náttúrufræðistofnun. Sameiningin er einn partur af heildarendurskoðun stofnanaskipulags ráðuneytisins sem hófst sumarið 2022. Í allri þeirri vinnu hef ég verið skýr með þá áætlun mína að fjölga störfum á landsbyggðinni og því er stefnan sú að höfuðstöðvar nýrrar stofnunar verði ekki staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Það þýðir þó ekki að starfsmenn viðkomandi stofnana, þ.m.t. þeirra sem munu þann 15. júlí næstkomandi sameinast Náttúrufræðistofnun, þurfi að flytja sig um set í sínum störfum heldur verða ný störf auglýst í höfuðstöðvum eða öðrum starfsstöðvum viðkomandi stofnunar á landsbyggðinni.
Í dag starfa alls um 80 manns hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingum Íslands og RAMÝ og þar af um 40 á starfsstöðvum á landsbyggðinni. Núverandi starfsstöðvar eru í Garðabæ, á Akranesi, á Akureyri, í Mývatnssveit og á Breiðdalsvík. Ég vil ítreka það, virðulegi forseti, að alveg frá fyrstu mínútu hefur það verið skýrt að þeir sem eru nú til staðar á starfsstöðvum þurfa ekki að færa sig.
Líkt og ég hef áður tekið fram er eitt af mikilvægustu markmiðunum í þessu ferli stofnanabreytinga að standa vörð um mikilvæga þekkingu og sérhæfingu starfsmanna okkar stofnana og stuðla að enn frekari þekkingaruppbyggingu og nýsköpun. Einnig vil ég nefna að í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 eru aðgerðir sem lúta að staðarvali ríkisstarfa og þar er sett fram eftirfarandi markmið, með leyfi forseta:
„Að dreifing starfa á vegum ríkisins verði jöfnuð og stuðlað að fjölbreyttu atvinnulífi sem víðast um landið. […] Þegar ný starfsemi hefst eða breytingar verða á starfsmannahaldi á vegum ríkisins verði metið með hlutlægum hætti hvort staðsetja megi störfin/starfsemina utan höfuðborgarsvæðisins.“
Í 1. gr. nýsamþykktra laga um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur segir að stofnunin stundi undirstöðurannsóknir á náttúru Íslands, vinni staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um Ísland og reki Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn.
Heimildina til að færa aðsetur stofnunar er að finna í 3. mgr. 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands en þar segir, með leyfi forseta:
„Ráðherra kveður á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir, nema á annan veg sé mælt í lögum.“
Virðulegi forseti. Það er mér ánægja að fá að flytja þessa munnlegu skýrslu og ég vonast til þess að það verði góðar umræður um hana.