154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

Flutningur höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[12:55]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að flytja þinginu þessa skýrslu um áform hans varðandi skipulagningu starfs Náttúrufræðistofnunar. Eðli máls samkvæmt kannski fer starfsemi undirstofnana umhverfisráðuneytisins fram víðs vegar um landið vegna þess að viðfangsefnin eru landfræðilega afmörkuð oft og tíðum, þannig að það verða mögulega minni skruðningar þegar það ráðuneyti ákveður að flytja höfuðstöðvarnar á nýja staði heldur en væri í ýmsum öðrum ráðuneytum og bara gott að sýna gott fordæmi í því.

En mig langar aðeins að velta upp í umræðunni, bara eitthvað sem við getum kannski farið að ræða meira inni í nefndum þingsins þegar við erum að fjalla um skipulag stofnana, hvort þessi mikla áhersla sem er lögð á hvar höfuðstöðvarnar eru, hvort hún byrgi okkur stundum sýn, hvort við missum sjónar á aðalmálinu þegar við erum svona mikið að fókusa á staðinn þar sem forstjóri og bókhaldari sitja þegar starfsstöðvarnar og net þeirra er kannski það sem skiptir meira máli. Náttúrufræðistofnun er að vísu með fáar starfsstöðvar miðað við margar aðrar stofnanir, það er ekki nema Akureyri og Garðabær í dag, en hin nýja stofnun tekur líka yfir náttúrustofurnar, sem eru átta talsins, eða teygir sig í þær. Viðfangsefnin sem við erum að fjalla um, þau dreifast því dálítið vel um landið.

Svo erum við með Umhverfisstofnun sem er annað dæmi þar sem er búið að festa í sessi níu starfsstöðvar hringinn í kringum landið. Ég held að langflest ef ekki öll störf þeirrar stofnunar séu auglýst án staðsetningar þannig að fólk getur bara valið að setja sig niður þar sem því sýnist. Þetta hefur gefið svo góða raun að t.d. er margbúið að þurfa að stækka húsnæðið á Akureyri vegna þess að fólk hefur bara viljað staðsetja sig þar og nýtt það að vinna hjá stofnuninni sem tækifæri til þess. Það gerðist án þess að Umhverfisstofnun væri með höfuðstöðvar á Akureyri. Þannig að þó að höfuðstöðvarnar skipti máli upp á það að stofnunin sé — þetta er symbólsk ákvörðun og symbólismi skiptir máli í pólitík. Hún hefur líka fjárhagslegar afleiðingar fyrir sveitarfélagið sem fær að hýsa stofnunina. Við þurfum samt að hlúa að þessari menningu sem mig langar að segja að sé til staðar í sérstaklega ríkum mæli hjá stofnunum umhverfisráðuneytisins varðandi það að starfsstöðvar séu dreifðar og það sé mikill sveigjanleiki fyrir starfsfólk að velja sér vettvang innan stofnunarinnar.

Það verður áhugavert að sjá hvað kemur út úr samtali ráðuneytisins varðandi hina endanlegu staðsetningu. Vesturland er dálítið stórt mengi. Það er spurning hvort við þurfum að eiga annað samtal hér í þingsal, aðra skýrslu þegar er kominn endanlegur staður, eða hvort þetta verði látið duga. En, já, heilt á litið er bara jákvætt að höfuðstöðvar hins opinbera séu ekki allar í einum hnapp en á sama tíma megum við ekki láta eins og það hvar höfuðstöðvarnar eru sé upphaf og endir alls. Ef við skipuleggjum stofnanirnar vel á það í rauninni að vera aukaatriði í stóra samhenginu.