Flutningur höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við flutning höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar í kjölfar munnlegrar skýrslu hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráð þeirra. Það er áhugavert og jákvætt að heyra hér af flutningi höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar á Vesturland en ég vil líka leggja áherslu á að við slíkan flutning er að mörgu að hyggja, eins og hæstv. ráðherra fór raunar vel yfir.
Starfsstöðvar náttúrufræðistofnunar voru lengst af tvær, í Garðabæ og á Akureyri, en gleymum ekki að það er líka starfsstöð á Breiðdalsvík þar sem borkjarnasafn stofnunarinnar er rekið í samstarfi við Breiðdalssetur og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík í jarðvísindum og málvísindum. Frá og með 1. júlí, þegar ný lög taka gildi, fjölgar stærstu starfsstöðvunum líka með sameiningu við Landmælingar og Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn.
Náttúrufræðistofnun Íslands er mikilvæg stofnun sem stundar undirstöðurannsóknir á náttúrunni, vinnur staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um Ísland og rekur einmitt frá næstu mánaðamótum Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn. Það er hægt að fara yfir hlutverkið í löngu máli í sjálfu sér en það eru undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði og ýmis heimildaöflun og utanumhald um heimildir, gagnabankar og yfirsýn og leiðbeiningar, að viðhalda landupplýsingum og víðtækt vöktunar- og fræðsluhlutverk. Þetta hlutverk er afskaplega mikilvægt fyrir landið allt. Í landi þar sem við byggjum lífsafkomu okkar á góðri sambúð við náttúruna, jafnt varðandi nýtingu og vernd, þá þurfum við á að halda bestu þekkingu og aðgengilegri þekkingu um náttúruna, samspil lífs og lands í ólíkum vistkerfum og hvernig náttúran þróast.
Eins og fram hefur komið hér er mikilvæg þekking og sérhæfing til staðar hjá stofnuninni. Ráðherra fór yfir að ekki yrði beinlínis um flutning einstakra starfa að ræða heldur verði byggt á þessu dreifða kerfi sem raunar er til staðar og það verði eflt enn frekar með starfsstöðvum, sem er mjög eðlilegt hjá stofnun með þessi viðfangsefni sem á svo líka samstarf við, eins og fram hefur komið, náttúrustofurnar sem starfa víða um land, háskólana í landinu og fleiri opinberar stofnanir, svo ekki sé talað um allt áhugafólkið sem tekur þátt í vöktun á náttúru landsins.
Eitt af mikilvægum hlutverkum Náttúrufræðistofnunar, sem ég þreytist ekki á að nefna hér í ræðustól, er að tryggja þessa umgjörð sem heldur utan um upplýsingar, þar sem allir sem koma að rannsóknum geta miðlað inn og allir sem þurfa á niðurstöðunum að halda geta sótt.
Flutningur starfsemi á vegum ríkisins hefur oft sætt gagnrýni og við eigum orðið miklar upplýsingar og skýrslur um að hverju þarf að hyggja og hvernig mikilvægt er að standa að því og sjálfsagt að ítreka að við þurfum að byggja á því sem við höfum, bestu þekkingu, og þá mun þetta gangi verkefni ganga vel. Auðvitað er mikilvægt að horfa bæði á markmið sem er auðveldara að ná með svona flutningi og líka á áskoranirnar þannig að það takist að vinna sem allra best í þeim málum.
Af því að ég nefndi sérstaklega samstarfið við háskólana og náttúrustofurnar þá er kannski ekki úr vegi að höfuðstöðvar á Vesturlandi yrðu þá í návígi við háskólann sem er að byggja upp mál sem hefur mikla alþjóðlega skírskotun og skírskotun innan lands, sem er Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri þar sem fer fram nám í búfræði en líka í landbúnaðarvísindum, skógfræði, lífvísindum, umhverfisvísindum, náttúruvernd og landslagsarkitektúr sem tengist auðvitað starfsemi þessarar stofnanir sem við erum að ræða hér. Sá háskóli er staðsettur á votlendissvæði og í mjög áhugaverða umhverfi. En á sama hátt má segja að við finnum áhugaverða náttúru hvar sem við stígum niður fæti á landinu.
Bara alveg að lokum: Rækilegur undirbúningur, markviss áætlanagerð, samráð og markviss eftirfylgni tryggja að verkefni af þessu tagi heppnist vel og þar hvílir rík ábyrgð á þeim ráðherra sem stofnunin heyrir undir.