154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

Flutningur höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[13:08]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka öllum þeim hv. þingmönnum sem hér töluðu. Bæði vil ég þakka hv. þingmönnum fyrir góð viðbrögð við þessari skýrslu en sömuleiðis líka fyrir afskaplega góð og þörf innlegg. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson talaði um gott fordæmi. Hann talaði sömuleiðis um að höfuðstöðvarnar skiptu ekki öllu máli. Það er auðvitað mikið til í því og bara svo að það sé alveg sagt er hugsunin á bak við þessa endurskipulagningu á stofnunum, svo að það sé ítrekað, sú að efla störf úti á landi. Ástæðan er náttúrlega einföld. Það sem snýr að starfsstöðvum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins er flest landsbyggðatengt, ef þannig má að orði komast. Bara staðarþekking, hún er eitthvað sem við megum aldrei vanmeta.

Hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir talaði sömuleiðis um að þetta væri jákvætt og mikilvægt að hafa góð tengsl við náttúrustofurnar, sem við ætlum að halda áfram, og bæði hún og hv. þm. Bjarni Jónsson nefndu tengslin við háskólann á Hvanneyri og fóru vel yfir það. Þess má geta að Hvanneyri er á friðlýstu svæði og við höfum verið að efla þar starfsstöð Umhverfisstofnunar. Það er staður sem við hljótum að líta til. Sömuleiðis verður auðvitað að taka það fram að það er mjög mikilvægt að á Akranesi verði líka áfram góð starfsstöð og við lítum til þess líka.

Hér er verið að fara aðra leið heldur en áður og ég er mjög vongóður um að hún muni skila góðum árangri. Þetta er þannig mál að ef við búum til nýja starfsstöð eða færum til störfin þá þurfa menn að undirbyggja það vel vegna þess að það þarf að flytja verkefni og það er starfsfólk á þessum svæðum sem býr þar og keyrir til vinnu, oft um langan veg. Það er langbest að undirbyggja það vel með forstöðumönnum viðkomandi stofnunar. Núna er líka stigið skref sem hefur ekki verið gert áður en það er að vinna þetta með viðkomandi samtökum sveitarfélaga. Þá er ég að vísa í Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem hafa tekið mjög vel í þá bón. Ég er þess fullviss að það mun skila góðri niðurstöðu. Það var gaman, af því að ég hef nú heyrt, ekki bara í forsvarsmönnum þeirra samtaka heldur líka þeim sem eru í forystu í mörgum sveitarfélögunum og mér fannst tónninn vera mjög jákvæður. Það sem mér fannst skipta mestu máli var að þessi tónn sem oft eyðilagði fyrir landsbyggðinni, að menn voru að keppa sín á milli og kroppa augun hver úr öðrum, mér finnst hann ekki vera til staðar lengur, sem er grunnurinn að því að hægt sé að ná árangri.

Þarna eru miklir möguleikar og hv. þingmenn Líneik Anna Sævarsdóttir og Bjarni Jónsson fóru vel yfir það og hv. þm. Bjarni Jónsson nefndi líka önnur svæði á landinu sem við verðum auðvitað að líta til. Í þessu tilfelli þurfum við að klára þetta verkefni og það verður gert í góðu samráði og samtali og með svolítið öðruvísi hætti en gert hefur verið áður. Ég er sannfærður um að það sé skynsamlegt að fara þá leið og hlakka til þess samstarfs og samtals og vil nú nota tækifærið líka hér að endingu og þakka aftur hv. þingmönnum fyrir gott innlegg og jákvæð viðbrögð.