skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Herra forseti. Ég vil eins og hv. þingmaður á undan mér fagna því að þetta mál sé komið þetta langt, að það sé verið að veita lífeyrissjóðunum heimild til að fjárfesta í óskráðum hlutafélögunum eða hlutafélögum sem ekki eru á hlutafjármarkaði í Kauphöllinni. Þetta skiptir miklu máli þegar við erum að tala um 5% af eignum lífeyrissjóðanna í þessu, þannig að þetta eru verulegir fjármunir og geta breytt stöðunni á húsnæðismarkaði nýti lífeyrissjóðir sér þessa heimild. Ég vil nota tækifærið hér og hvetja lífeyrissjóðina til að koma þá hugsanlega með fjármuni heim sem þeir hafa verið að nýta til fjárfestinga í útlöndum og setja þá í fulla vinnu hér til að laga handónýtan húsnæðismarkað á Íslandi.