154. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2024.

veiting ríkisborgararéttar.

1174. mál
[16:24]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar frá allsherjar- og menntamálanefnd. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 143 umsóknir um ríkisborgararétt á þessu vorþingi og samkvæmt tillögu undirnefndar allsherjar- og menntamálanefndar verður 19 umsækjendum veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni auk fjögurra barna umsækjenda. Þetta eru sem sagt alls 23 einstaklingar sem við í allsherjar- og menntamálanefnd gerum að tillögu okkar að öðlist ríkisborgararétt.

Ég vil nota tækifærið og þakka kærlega þeim þremur fulltrúum allsherjar- og menntamálanefndar sem sitja í umræddri undirnefnd. Þau hafa lagt á sig mjög mikla vinnu við að fara yfir allar þær umsóknir sem borist hafa og komið sér saman um þá tillögu sem nú liggur hér fyrir þinginu. Ég vona að okkur lánist að samþykkja þessa góðu tillögu og óska þeim sem hér hljóta ríkisborgararétt innilega til hamingju og velfarnaðar í okkar góða samfélagi.