veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Við erum að taka hér stóra ákvörðun, Alþingi Íslendinga, um að veita 23 aðilum ríkisborgararétt, óafturkræfa ákvörðun. Ég hef áður gagnrýnt það fyrirkomulag sem þingið hefur á þessum afgreiðslum. Nú er stærstur hluti þingheims, nánast allir þingmenn — að undanskildum þremur þingmönnum sem hafa í raun getað kynnt sér undirliggjandi gögn í þessu máli og metið af hverju 120 umsækjendum er hafnað en 23 umsækjendum veittur ríkisborgararéttur. Þetta er auðvitað í algjörri andstöðu við það verklag sem við viðhöfum. Það má meira að segja ganga svo langt að segja að það væri ekkert óeðlilegt við það að landsmönnum væri gefið tækifæri á því að senda inn hugmyndir, þ.e. að senda inn umsagnir um þessi nöfn, sem lægju þá fyrir, upplýsingar, hvatningu eða annað sem lægi til grundvallar. Alla vega held ég að við séum komin að þeim tímamótum í þinginu í þessum málum að við verðum að fara að breyta hér vinnulagi. Við getum ekki haft þetta með þeim hætti að þetta sé að hluta til — ja, þetta er algerlega ógagnsætt. Það fylgir enginn rökstuðningur með höfnun eða veitingu annar heldur en vinna þriggja einstaklinga, þriggja þingmanna.
Ég er örugglega ekki eini þingmaðurinn sem hef verið að fá athugasemdir núna, hef verið að fá hvatningu. Þannig hefur það verið öll árin sem ég er búinn að vera hér og taka þátt í þessari afgreiðslu. Þetta er að mínu mati, og ég veit að margir eru sammála mér, óeðlilegt. Við getum ekki staðið svona tilviljanakennt að málum, með svona ógagnsæjum hætti. Það er bara alls ekki eftir því verklagi sem þingið á að starfa.
Ég mun ekki greiða atkvæði með þessu núna. Ég mun heldur ekki greiða atkvæði á móti því. Ég treysti þessu fólki sem er búið að fjalla um þetta á vettvangi nefndarinnar, þessum kollegum okkar sem hafa um þetta fjallað. Ég veit að það er búið að vera bullandi ágreiningur í þessari undirnefnd. Það er ekkert nýtt. Ég veit að þingmenn hafa verið að fá skilaboð frá hinum og þessum um að ýta á eftir málum. Þetta myndi í öllum málum teljast algjörlega forkastanleg vinnubrögð. Ég legg það til, virðulegur forseti, að forseti hlutist til um það fyrir næsta þing að unnið verði að breytingum á vettvangi þingsins á þessu vinnulagi. Þetta gengur ekki upp svona að mínu mati.