154. löggjafarþing — 127. fundur,  20. júní 2024.

veiting ríkisborgararéttar.

1174. mál
[16:30]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég má til með að koma hingað upp til að bregðast við ræðu hv. þm. Jóns Gunnarssonar sem kallar ferli þingsins við að veita ríkisborgararétt óeðlilegt. Það vill nú þannig til að réttur þingsins og frumkvæði að því að veita ríkisborgararétt er að finna í stjórnarskrá. Það er hið náttúrulega ferli hér. Við höfum hins vegar valið að gefa Útlendingastofnun heimild til að veita ríkisborgararétt séu ákveðin skilyrði uppfyllt. En þingið er veitingaraðili ríkisborgararéttar samkvæmt stjórnskipun landsins og þetta hef ég ekki þreyst á að árétta. Það er vissulega ekki farið eftir stjórnsýslulögum við meðferð umsókna um ríkisborgararétt hér á þingi, enda erum við ekki framkvæmdarvaldið, við erum ekki stjórnsýslustofnun, við erum löggjafinn. Hafandi setið í þessari undirnefnd þá eru hins vegar ákveðnar verklagsreglur og ég er alveg sammála að það mætti vera skýrara til hvaða sjónarmiða nefndin lítur þegar hún fer í gegnum þessar umsóknir. Þær eru alla jafna þær hvort fólk geti fengið ríkisborgararétt eftir stjórnsýsluleiðinni og hvort einhverjar ástæður séu til þess að veita viðkomandi aðila ríkisborgararétt út af einhverju sem er áríðandi eða einhverju sem við teljum landi og þjóð til sóma og ágætis. Það er líka þannig að í flestum lýðræðislöndum í kringum okkur er einhver veitingarhafi sem hefur það sem má alveg kalla geðþóttavald í veitingu ríkisborgararéttar, hvort sem það er þá forsetinn eða þingið. Þá er ég að sjálfsögðu ekki að tala um okkar forseta. Ég tel að það sé ágætt að svo eigi að vera.

Það eru forréttindi að vera með ríkisborgararétt á Íslandi og auðvitað er það vandmeðfarið verk að ákveða hverjir skuli fá hann með lögum. Ég tel að þangað til hv. þingmaður og þáverandi hæstv. ráðherra, Jón Gunnarsson, fór að vasast í að eyðileggja þetta ferli þingsins fyrir nokkrum árum þegar hann var ráðherra hafi þetta gengið bara alveg ágætlega fyrir sig. Það var a.m.k. mín reynsla.

Ég vildi koma hingað til þess að koma þinginu til varnar. Ef ekki væri fyrir afskipti ríkisstjórnarinnar þá tel ég að þetta ferli væri enn í töluvert góðum farvegi. Vissulega þurfa breytingar að koma til en þær felast að ég tel einna helst í því að framkvæmdarvaldið hætti að skipta sér af athöfnum löggjafans sem bundnar eru í stjórnarskrá.