veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Ég var bara langt því frá og alls ekki að draga það í efa að þingið hefði það vald að veita ríkisborgararétt. Þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um hvort það sé eðlilegt, sem Pírötum finnst greinilega eðlilegt ef marka má þennan málflutning, að þetta sé háð einhvers konar geðþóttavaldi. Það tel ég vera ákaflega óheppilega stjórnsýslu af hálfu Alþingis, að það sé háð geðþótta þingmanna hverjir fá hér ríkisborgararétt og hverjir ekki. Það mætti kannski bara biðja hv. þingmenn að rétta upp hönd sem þekkja þær reglur sem hv. þingmaður, sem hefur setið í undirnefndinni, vitnaði hér til, þau skilyrði sem eru lögð til grundvallar. Ég er búinn að vera hér í 17 ár og ég þekki þau ekki. Ég efast um að nokkur þekki þau sérstaklega nema þeir sem hafa starfað í þessari þriggja manna undirnefnd. Og að kenna síðan ríkisstjórninni og mér um það að hafa sett einhvern stein í götu þessara mála, þá er ágætt að rifja það upp að þegar ég hóf breytingar á því að afhenda upplýsingar til þingsins vegna þessara umsókna sem hingað berast um ríkisborgararétt þá fór ég í það að fara að lögum. Það var að verða að meginreglu að umsóknir um ríkisborgararétt bærust hingað, sem voru alltaf undantekningatilfelli hér áður eins og ég tel að það eigi að vera. Ég setti þetta í það að umsóknir væru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Það væri engin geðþóttaleið hv. þingmanna sem réði því hvernig rannsókn á umsóknunum færi fram. Það væri bara í þeirri röð sem þau berast. (Forseti hringir.) Það væri engin VIP-leið í því hér í gegnum ráðuneytið eða undirstofnanir þess.