veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Hver var að ræða það hér að það yrði að fara að stjórnsýslulögum í þessu? (ÞSÆ: Þú.) Það sem ég á við er hvernig haldið er á stjórnsýslu innan þingsins í þessum málum. (Gripið fram í.) Hér er eingöngu verið að kalla eftir gagnsæi, réttlátri meðferð, ekki leyndarhjúp sem leiðir af sér ógagnsæi sem oft er orðað við spillingu. Það er ákaflega fróðlegt fyrir landsmenn og þingmenn að átta sig á því að það eru Píratar sem virðast vera helstu varðhundar þess hér í þinginu að við opnum þessi mál ekki meira og tökum upplýstari ákvarðanir, þingmenn. Ég hef engar efasemdir um heimildir þingsins til að veita ríkisborgararétt og ég tel að það þurfi ekki einu sinni að vera í lögum. Þingið getur tekið ákvörðun um hvað sem það vill í þeim efnum, hvenær sem það vill, enda hefur þetta ekki alltaf verið bundið bara við þessar dagsetningar. Í undantekningartilfellum höfum við veitt ríkisborgararétt þess utan.
Hér er verið að reyna að slá ryki í málflutninginn í þessu máli. Ég held að það sé tímabært að þingið breyti vinnulagi sínu í þessu, leggi í þetta meiri vinnu, hafi málin í opnara ferli þannig að hér taki menn upplýstari ákvarðanir en staðreyndin sé ekki eins og hún blasir við okkur í dag, að við erum að veita hér 23 einstaklingum, ef ég man rétt, ríkisborgararétt og það eru þrír þingmenn sem hafa kynnt sér bakgrunn þessa fólks, kynnt sér þessar upplýsingar. Það eru 120 sem er hafnað og það er enginn rökstuðningur sem fylgir því af hverju það er gert. Þetta finnst Pírötum ásættanleg málsmeðferð. Þau vilja hafa þetta svona. Ég held að við allir Sjálfstæðismenn (Forseti hringir.) hér á þingi séum sammála um að hafa þetta ekki svona.