veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Ég held að hv. þingmaður verði að spyrja félaga sína í Sjálfstæðisflokknum sem hafa tekið þátt í þessari vinnu í þessari nefnd í mörg ár hvort þeim hafi fundist þetta svona hræðilegt. Hv. þingmaður gefur mér frábært tækifæri til að útskýra muninn á friðhelgi einkalífs og því að viðhafa gagnsæi í stjórnsýslu. Það sem hv. þingmaður er að kalla eftir er í fyrsta lagi að allir þeir sem sækja um ríkisborgararétt séu auglýstir einhvers staðar. Ég er bara að reyna að átta mig á hvernig framkvæmdin á þessum tillögum sem hann kom með í ræðu sinni áðan fer fram. Hér eru allir umsækjendurnir og fólk getur komið með umsagnir um þessa umsækjendur, hvort því finnist þeir nógu góðir til að verða Íslendingar. Það er ein af tillögunum sem hv. þingmaður kom með. Sér hann fyrir sér að þetta sé gáfulegt fyrirkomulag? Ég held ekki.
Varðandi það að fá aðgang að viðkvæmum persónuupplýsingum fólks vegna þess að hv. þingmann þyrstir svo að vita um það og hvort það eigi skilið að fá íslenskan ríkisborgararétt og finnst að allir þingmenn eigi að hafa allar upplýsingar sem þurfa að liggja fyrir fyrir svona umsókn, sem eru t.d. skattframtöl, hvort fólk hafi þegið fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum, hvort fólk sé jafnvel með eitthvað á sakaskrá, og þetta vill hann að — hvað? Að við höfum bara í nefndagátt þingsins?
Nei, virðulegi forseti. Það hefur verið ágætt fyrirkomulag á þessu og bara til að árétta það erum við hér að setja lög. Það er verið að setja lög um ríkisborgararétt og því er ekki hægt að tala um einhverja stjórnsýslu. Það er mjög skýrt. Stjórnsýsla þingsins snýr ekki að lagasetningu þingsins. Þannig að enn er hv. þingmaður bara á villigötum um hvað hann er að tala og ég bið hann um að fræðast betur um þennan málaflokk. Hann var nú einu sinni dómsmálaráðherra. Hann skilur ekki grundvallarstjórnskipun landsins. Það er eitthvað skrýtið við það, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) að borgaraflokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn fatti ekki hvernig ríkið virkar.