154. löggjafarþing — 127. fundur,  20. júní 2024.

veiting ríkisborgararéttar.

1174. mál
[16:42]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Það er þyngra en tárum taki að þessi gleðidagur sem við höfum árum saman setið hér í þessum sal, og það er fyrir því löng og sterk hefð að veita einstaklingum ríkisborgararétt með lögum, sé kominn niður á þetta smánarlega plan. Það er ekkert öðruvísi en það. Ég fagna þessum degi. Ég óska þeim einstaklingum sem á listanum eru hjartanlega til hamingju. Ég sit í undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar og hef gert það frá því að ég settist á þing. Þetta er flókin og þetta er snúin vinna og því hef ég líka kallað eftir því við allsherjar- og menntamálanefnd að það verði okkar fyrsta verk að hausti að setja um þetta betri reglur, ekki endilega neitt sem lýtur að stjórnsýslu, því að hér er ekki um stjórnsýsluákvarðanir að ræða, heldur að einstaka þingmenn, nú eða ráðherrar geti ekki komið endalausum vanda að þessari vinnu og hún geti gengið eðlilega og heiðarlega fyrir sig.

Ég verð að fá að nota þetta tækifæri og bera af mér sakir þegar vísað er til þess að þetta tengist spillingu og ógagnsæi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Þannig er nú bara staðan. Svona eru lögin, svona vinnur þingið og það er nú bara þannig að þó að einstakir þingmenn séu ósáttir við eitthvað í okkar verkum hér á þingi þá hafa þeir víða aðgang að því að koma þeirri skoðun á framfæri en þeir breyta því ekki. Og það setur þingið niður að við séum hér á þessum góða degi að tala niður þennan gleðidag þar sem 23 einstaklingar öðlast íslenskan ríkisborgararétt. Ég býð þau hjartanlega velkomin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)