veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Þetta er svona hefðbundin atkvæðaskýring hjá mér við þetta tilefni. Þetta snýr ekki að þeim sem hér í dag öðlast ríkisborgararétt en við í þingflokki Miðflokksins sitjum hjá við þessa atkvæðagreiðslu og við höfum bent á það í gegnum árin að við teljum annað lag betra hvað þetta varðar heldur en það sem viðhaft er núna. Ég fagna því ef það er verið að leggja þær línur í allsherjar- og menntamálanefnd að þetta verði tekið til skoðunar en bara að óska þeim sem hér öðlast ríkisborgararétt til hamingju og vona að þeir verði góðir og gegnir þegnar og hafi það sem best hér á Íslandi.