154. löggjafarþing — 128. fundur,  20. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:24]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætlaði bara að athuga með það hvort beiðni mín um að þetta fari aftur til nefndar hafi ekki örugglega skilað sér milli umræðna þar sem það eru í þessu frumvarpi hlutir sem þarf að skoða nánar varðandi þak á hvað má rukka mikið fyrir hverja færslu og annað í kerfinu.