Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Það fellur í minn hlut að flytja hér nefndarálit 3. minni hluta en fulltrúi Pírata í allsherjar- og menntamálanefnd sem undir þetta nefndarálit skrifar er hv. þm. Halldóra Mogensen. Ég mun síðan að loknu nefndarálitinu ef ég hef tíma nefna líka tvær breytingartillögur sem tveir þingmenn Pírata hafa flutt en ég hef hér lestur á nefndaráliti, með leyfi forseta.
„Ný heildarlög um Menntasjóð námsmanna voru lögfest árið 2020 og í meðförum Alþingis var sett inn bráðabirgðaákvæði um að lögin skyldu endurskoðuð að þremur árum liðnum. Nú er sá tími liðinn og Ríkisendurskoðun hefur lagt mat á þörf fyrir heildarendurskoðun laganna í skýrslu sem gefin var út í desember 2023. Niðurstöður skýrslunnar sýna að mun færri námsmenn nýta sér námsstyrki en gert var ráð fyrir og eftirspurn eftir námslánum hefur sömuleiðis dregist saman. Þá hafa stúdentar bent á annmarka styrkjafyrirkomulagsins og ítrekað að núverandi fyrirkomulag, þar sem námsframvinda er skilyrði þess að hægt sé að ávinna sér námsstyrk, leiði til þess að ójafnræði og ójöfnuður aukist á milli kynslóða og skili sér ekki í hraðari námsframvindu eins og vonir stóðu til. Endurgreiðslufyrirkomulag sem ákveðið var í lágvaxtaumhverfi hefur sætt gagnrýni þar sem efnahagsumhverfi hafi tekið miklum breytingum frá gildistöku laganna. Breyttar aðstæður í efnahagsumhverfi skapi óvissu fyrir námsmenn þar sem vaxtastig er óljóst allan námstímann eða þar til þau útskrifast. Þriðji minni hluti vill einnig vekja athygli á því að endurgreiðslufyrirkomulagið felur í sér talsverða fjárhagslega áhættu fyrir námsmenn sem ekki er á færi allra að undirgangast, eins og fram kemur í skýrslu ríkisendurskoðanda.“
Aðeins um núverandi stöðu stúdenta gagnvart námslána- og styrkjakerfinu.
„Markmið laga um Menntasjóð námsmanna, að tryggja stúdentum jöfn tækifæri til náms með fjárhagsstuðningi, hefur ekki náðst. Grunnframfærsla sem námsmönnum er boðið upp á með námslána- og styrkjakerfi er einfaldlega of lág til að hægt sé að ná endum saman. Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) og Bandalag háskólamanna (BHM) lýsa verulegum áhyggjum af stöðu íslenskra stúdenta í umsögn sinni um málið 2. maí 2024: „Í ljósi yfirgripsmikilla athugasemda frá hagaðilum og þeirra vankanta sem reifaðir eru í skýrslu ráðherra um endurskoðun á Menntasjóði námsmanna er ljóst að tilefni er til viðameiri breytinga og furða samtökin sig á takmörkuðu umfangi þeirra aðgerða sem boðaðar eru í frumvarpinu. Þær breytingar sem eru lagðar til duga hvergi nærri til við að skapa heilbrigt stuðningskerfi fyrir stúdenta og endurspeglar frumvarpið sem liggur hér til umsagnar stefnuleysi í málaflokknum.“
Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu felast í niðurfellingu ábyrgðarmannakerfis námslána og rýmkun skilyrða til námsstyrks. Þriðji minni hluti tekur heils hugar undir þessar áhyggjur BHM og LÍS en telur að ekki sé einungis um stefnuleysi í málaflokknum að ræða heldur líka skeytingarleysi í garð stúdenta að grípa ekki tafarlaust til aðgerða til að tryggja aðgengi allra að menntun. Það er mat 3. minni hluta að gengið sé of skammt í aðgerðum sem kynntar eru í frumvarpinu.“
Þá eilítið um niðurfellingu ábyrgðarmannakerfis námsmanna.
„Samkvæmt lánareglum Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2023–2024 kemur fram að ábyrgðar sé krafist ef lánþegi er ekki talinn tryggur lántakandi. Þriðji minni hluti fagnar þeim áformum að afnema eigi ábyrgðarmannakerfi. Það er þó mikið áhyggjuefni að mati 3. minni hluta að þær breytingar er varða ábyrgðarmannakerfi sem lagðar eru til í frumvarpinu leiði til þess að „ótryggir lánþegar“ eigi þess ekki lengur kost að taka lán hjá sjóðnum. Með þessu fyrirkomulagi er skilinn eftir hópur fólks sem er á vanskilaskrá og komið í veg fyrir möguleika þeirra til að taka námslán. Þriðji minni hluti telur ekki nægjanlegt að undanþágur frá þessu séu útfærðar í úthlutunarreglum eins og segir í breytingartillögu meiri hlutans. Nauðsynlegt er að festa undanþágur í lög til að tryggja aðgengi ótryggra lánþega að námslánum. Í ljósi þess að tilgangur Menntasjóðs námsmanna er að gera öllum kleift að stunda háskólanám, óháð fjárhagslegri stöðu, þykir 3. minni hluta eðlilegra að falla frá þeirri kröfu að fjárhagsstaða viðkomandi lánþega þurfi að vera traust þegar námslán er tekið. Þannig er hægt að styrkja félagslega stöðu þessa hóps og tryggja betur stöðu þeirra gagnvart námslánakerfinu. Bandalag háskólamanna og Landssamtök íslenskra stúdenta telja að „afnema ætti öll skilyrði um ábyrgðir“ og tekur 3. minni hluti undir það enda er sjóðurinn hugsaður sem félagslegt jöfnunartæki.“
Þá aðeins um rýmkun á skilyrðum fyrir námsstyrki.
„Eins og áður hefur komið fram hafa færri nýtt sér námsstyrkjakerfið en vonir stóðu til. Öllum má vera ljóst að úrræði sem ekki er sótt í virkar ekki sem skyldi. Námsstyrkjakerfi virkar ekki ef námsmenn sjálfir geta ekki nýtt það. Þær úrbætur sem lagðar eru til í frumvarpinu, að námsmanni sé heimilt að skipta um námsleið einu sinni á námstíma án þess að það hafi áhrif á rétt hans til námsstyrks, eru jákvæðar í grunninn. Það er mjög jákvætt að stúdentum sé gefið meira svigrúm til að skipta um skoðun. Þriðji minni hluti telur þó að kerfið hafi ekki verið mótað samkvæmt þörfum námsmanna heldur séu þeim settar þröngar skorður sem gætu leitt til þess að þau veigri sér við að fylgja eigin sannfæringu og ástríðu. Það er mikilvægt að námsmenn hafi ráðrúm til að skipta um skoðun oftar en einu sinni og að sú ákvörðun bitni ekki á möguleikum þeirra til að nýta sér námsstyrkjakerfi. Þrátt fyrir að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, sem ber ábyrgð á málaflokknum, sýni með þessu frumvarpi ákveðna viðleitni til að veita stúdentum meira svigrúm við ákvörðunartöku sína er krafa um námsframvindu of rík. Að mati 3. minni hluta ætti frekar að leggja áherslu á brautskráningu stúdenta heldur en námsframvindu innan ákveðinna tímamarka. Ofuráhersla ráðherra á sjálfbærni Menntasjóðs námsmanna og hagræðingu innan kerfis með því að leggja stein í götu stúdenta er skýrt merki um að ráðherra sjái ekki þá fjárfestingu sem felst í því að styrkja fólk raunverulega til náms og tryggja aðgengi allra að menntun óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu. Sú skammsýni verður samfélaginu dýrkeypt til lengri tíma.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti hefur gengist við því að núverandi fyrirkomulag námslána- og styrkjakerfis hafi hvorki staðið undir væntingum ráðuneytisins né stúdenta og að heildarendurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sé nauðsynleg. Þrátt fyrir það virðist ráðuneytinu ekki liggja á að gera þær nauðsynlegu breytingar sem þörf er á og stúdentar hafa ítrekað kallað eftir. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur í ofanálag lofað stúdentum að breytinga sé að vænta en hvenær það verður liggur ekki fyrir. Í viðbótarumsögn Landssamtaka íslenskra stúdenta 2. maí 2024 reifa samtökin tillögur að breytingum sem raunsætt væri að hrinda strax í framkvæmd. Þær breytingar snerta fyrirmynd námsstyrkjakerfisins, hækkun framfærslulána og bætt vaxtakjör. Ekki er eftir neinu að bíða og vel gerlegt að verða við þessum grunnóskum stúdenta samhliða því að endurskoða lögin í heild sinni. Þriðji minni hluti styður stúdenta í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og hvetur ráðuneytið til að flýta aðgerðum í takt við þarfir og ábendingar stúdenta. Stúdentar geta ekki setið lengur á hakanum.“
Í nefndarálitinu er breytingartillaga 3. minni hluta en hún hljóðar svo:
„Að mati 3. minni hluta er í ljósi framangreindrar umfjöllunar gríðarlega mikilvægt að allir lánþegar, ekki aðeins þeir sem teljast tryggir, hafi aðgang að námslánum og að lítill hópur þeirra sem kunna að teljast ótryggir lánþegar verði ekki skilinn eftir. 3. minni hluti leggur fram breytingartillögu þess efnis að skilyrði um að teljast tryggur lánþegi í 2. mgr. 11. gr. laganna verði fellt brott.
Með hliðsjón af framangreindu leggur 3. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
Við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Orðin „teljist þeir tryggir lánþegar samkvæmt úthlutunarreglum“ í 2. mgr. 11. gr. laganna falla brott.“
Undir þetta nefndarálit ritar hv. þm. Halldóra Mogensen.
Við erum tveir þingmenn Pírata sem höfum lagt fram breytingartillögur óháð þessu nefndaráliti og ætla ég að nýta örlítið af tímanum sem ég á eftir til að fara yfir þau. Annars vegar er breytingartillaga á þskj. 1511 sem lögð var fram af þeim sem hér stendur. Þessari breytingartillögu er ætlað að taka á nokkru af þeim punktum sem nefndir voru í nefndarálitinu úr viðbótarumsögn Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Í fyrsta lagi að á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
„Við 2. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Framfærslulán skal ekki vera lægra fyrir hvern mánuð í 100% námi en sem nemur grunnatvinnuleysisbótum skv. 2. mgr. 33. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.“
Þarna er verið að taka á því að hækka framfærslulánið þannig að lántakendur séu að fá svipaða framfærslu eins og gert er ráð fyrir að þeir sem eru á atvinnuleysisbótum þurfi.
Í öðru lagi er lagt til að á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
„Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
Í stað tölunnar „44“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: 24.“
Þetta var fyrri liðurinn. Ég ætla að skýra hann út áður en ég fer í næsta lið. Þetta með að breyta tölunni 44 í 24 hefur að gera með það hversu margar einingar viðkomandi þarf að standast á hverju námsári til að fá lán. Það er nefnilega þannig í dag að ef miðað er við að 30 einingar séu fullt nám þá þarf viðkomandi að standast 22 einingar. Það er hins vegar oft þannig í námskerfinu að viðkomandi þarf að taka t.d. þrjá 10 eininga kúrsa. Það að falla í einum af þessum þremur 10 eininga kúrsum myndi hafa þau áhrif að viðkomandi fengi ekkert lán. Þess vegna leggjum við til að lækka þetta niður í 24 einingar yfir árið eða 12 einingar á misseri, þ.e. að þú þurfir að standast alla vega einn stóran kúrs plús eitthvað aðeins meira til að fá eitthvert lán. Þetta er að norrænni fyrirmynd.
Í seinni hluta 2. gr. þessarar breytingartillögu kemur eftirfarandi, að við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
„Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að greiða námslán miðað við fulla námsframvindu þótt hún hafi ekki verið uppfyllt. Þær einingar sem út af standa skulu skráðar og getur námsmaður nýtt sér slíkt svigrúm fyrir allt að 60 ECTS-einingar eða ígildi þeirra við nám sem er lánshæft skv. II. kafla.“
Þarna er einnig verið að fylgja norrænni fyrirmynd sem gerir það að verkum að ef viðkomandi nær af einhverjum ástæðum ekki að klára fullt nám þá getur viðkomandi fengið að færa það áfram yfir á næstu annir en fær samt sem áður greitt út námslán. Þetta er hugsað á Norðurlöndunum til að geta tekist á við óvænta hluti sem gerast, hvort sem það eru einhver veikindi eða jafnvel eitthvað sem gerist í fjölskyldu viðkomandi eða eitthvað álíka. Þarna færðu tækifæri til að flytja hlutina á milli.
Í 3. gr. breytingartillögunnar kemur eftirfarandi fram:
„Við 2. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Í stað hlutfallstölunnar „30%“ í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur: 40%.“
Þarna erum við einfaldlega að auka styrkjahlutfallið, þ.e. að í stað þess að 30% af láninu séu styrkur þá séu það 40%.
Að lokum er í 4. gr. lagt til að á eftir 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
„Á eftir 26. gr. laganna kemur ný grein, 26. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi: Niðurfelling námslána.
Heimilt er að fella niður námslán, að hluta eða öllu leyti, vegna verulegra fjárhagsörðugleika lántaka, alvarlegra og varanlegra veikinda lántaka, eða annarra sérstakra ástæðna. Ráðherra er heimilt að útfæra nánari skilyrði um hlutfall niðurfellingar, að fenginni umsögn stjórnar Menntasjóðs námsmanna og Landssamtaka íslenskra stúdenta.“
Það hefur nefnilega verið kvartað yfir því þeim reglum sem eru í dag varðandi það að geta fellt niður námslán í sérstökum tilvikum, t.d. ef einhver glímir við varanleg veikindi eða verulega fjárhagsörðugleika en Menntasjóðurinn telur sig ekki hafa nægilega miklar heimildir til að fella niður. Þess vegna er lagt til að þessari grein sé bætt við.
Þá lýkur lestri mínum af þeim breytingartillögum sem sá sem hér stendur leggur til. En það er einnig breytingartillaga frá hv. þm. Indriða Inga Stefánssyni á þskj. 1520. Hún hljómar á þennan veg, með leyfi forseta:
„Við 2. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Takmörkun skv. 5. málsl. við að skipta einu sinni um námsleið á ekki við ef lánþegi stundar nám sem er lagt niður og honum því gert ókleift að halda því námi áfram.“
Í greinargerð með þessari tillögu er sagt:
„ Lagt er til að þrátt fyrir að eðlilegar ástæður geti legið því til grundvallar að takmarka það að nemandi skipti um nám eigi nemandi ekki að gjalda þess ef námsleið sem hann stundar er lögð niður.“
Nú veit ég bara sjálfur frá reynslu minna barna sem hafa einmitt farið í nám sem síðan var lagt niður, að þau sátu uppi með það að vera búin að nota ákveðið mikið af námslánum til að fara í það nám en gátu síðan ekki haldið áfram og sitja því uppi með enga möguleika á því að fara í nýtt nám og halda áfram að fá lánið.
Nú er meiri hlutinn að gera þær tillögur í sínu nefndaráliti og sínu frumvarpi að hægt sé að breyta um nám einu sinni. Þetta er einfaldlega til að víkka það örlítið út fyrir þá nemendur sem lenda í því að nám þeirra er ekki lengur í boði.
Ég vona að þetta hafi gert sæmilega grein fyrir því nefndaráliti sem fulltrúi Pírata í allsherjar- og menntamálanefnd ritaði og þessum tveimur breytingartillögum frá okkur þingmönnum Pírata sem við lögðum fram við 1. umræðu. Ég vona að hv. þingmenn hér inni taki þessum hugmyndum vel og með opnum huga því að við erum að fjárfesta í framtíðinni með því að fjárfesta í námsmönnum.