154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá Loga Einarssyni, 5. þm. Norðaust., um að hann verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Hilda Jana Gísladóttir. Hilda Jana Gísladóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.