154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Störf þingsins.

[10:33]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Yazan er 11 ára drengur sem er greindur með duchenne-vöðvarýrnun, en duchenne er einn alvarlegasti arfgengi vöðvarýrnunarsjúkdómurinn. Sjúkdómurinn er hrörnunarsjúkdómur þar sem allir meginvöðvar líkamans rýrna smám saman, þar á meðal hjarta- og öndunarvöðvar. Lífslíkur fólks með sjúkdóminn eru verulega skertar en án þjónustu er meðalaldur í kringum 19 ár. Sjúkdómurinn krefst stöðugrar umönnunar og er aðgengi að sérhæfðri læknisþjónustu nauðsynlegt til að lengja lífslíkur sem mest. Yazan og foreldrar hans flúðu heimili sitt í Palestínu í leit að skjóli og öryggi á Íslandi fyrir ári síðan. Frá komu þeirra hafa þau orðið hluti af samfélagi okkar og lagt sitt af mörkum þrátt fyrir að standa frammi fyrir fjölmörgum hindrunum. Áður en Yazan kom til Íslands hafði hann hvorki aðgang að viðeigandi læknisþjónustu né fékk að taka þátt í skóla- og frístundastarfi.

Nú á að brottvísa honum til Spánar, lands sem hann og fjölskylda hans hafa aldrei dvalið í. Með því gæti orðið hlé á þjónustu í allt að 18 mánuði, 18 mánuði sem munu valda óafturkræfum skaða sem minnka verulega lífsgæði hans og stytta líf hans. Það að veita honum vernd hérlendis er ekki aðeins aðkallandi mannúðarskylda heldur einnig mál upp á líf og dauða fyrir Yazan. Stuðningskerfin og læknishjálpin sem er í boði á Íslandi er lífsnauðsynleg fyrir Yazan og hans heilsu. Með því að rífa Yazan upp úr núverandi umhverfi sínu og taka af honum viðeigandi læknisaðstoð og stuðning er ekki einungis verið að svipta hann þeim stöðugleika sem hann þarf nauðsynlega til að lifa bærilegu lífi heldur er verið að ógna lífi hans og dæma hann til óþarfaþjáningar og -erfiðleika og hafa fjölmörg samtök fordæmt áform stjórnvalda um að brottvísa Yazan og fjölskyldu hans. (Forseti hringir.) Það eru nákvæmlega svona tilvik sem við viljum geta tekið tillit til af mannúðarsjónarmiðum þegar kemur að því að veita vernd en núverandi ríkisstjórn hefur gert ókleift. (Forseti hringir.) Viljum við í alvöru vera ábyrg fyrir því að stytta líf 11 ára drengs sem er nú þegar verulega stytt?