Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að nota tækifærið hér til að vekja athygli á breytingartillögum sem allir flokkar í stjórnarandstöðu, Samfylking, Píratar, Flokkur fólksins, Miðflokkurinn og Viðreisn, standa að vegna frumvarps sem hefur verið til umfjöllunar hjá velferðarnefnd um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Við höfum, fulltrúar allra þessara flokka, undanfarnar vikur, bent á alvarlega ágalla á frumvarpi ráðherra sem verður að laga. Þar hafa stjórnarandstaðan, ÖBÍ, réttindasamtök og Þroskahjálp, verið algerlega samstiga og blessunarlega hefur náðst sátt í velferðarnefnd um ákveðnar breytingar, sérstaklega í þágu þeirra sem munu reiða sig á hlutaörorkulífeyri. En betur má ef duga skal og þess vegna stóð stjórnarandstaðan saman að fimm tillögum að breytingum.
Í fyrsta lagi kallar stjórnarandstaðan eftir því að fjárhæð heimilisuppbótar verði hærri en gert er ráð fyrir í frumvarpinu til að verja betur kjör þeirra öryrkja sem búa einir. Í öðru lagi leggjum við áherslu á að öryrkjar í atvinnuleit fái meira svigrúm heldur en gert er ráð fyrir til að finna starf við hæfi án þess að virknistyrkur falli niður. Í þriðja lagi höfum við kallað eftir því að skerðing á örorkulífeyri vegna fjármagnstekna maka verði afnumin. Í fjórða lagi köllum við eftir því að það verði hafið algerlega yfir allan vafa að enginn sem þegar hefur fengið örorkumat verði þvingaður í hið nýja samþætta sérfræðimat, að lagaákvæði um þetta verði skýrt betur. Í fimmta lagi köllum við eftir auknu þinglegu eftirliti, að Alþingi fái skýrslu frá ráðherra um útfærslu og þróun á samþættu sérfræðimati sem velferðarnefnd fjalli svo um.
Þetta eru allt saman mikilvægar breytingar sem varða ekki aðeins alla þá sem eru öryrkjar í dag heldur líka vinnandi fólk almennt (Forseti hringir.) sem getur misst starfsgetu í framtíðinni. Ég hlakka til frekari umfjöllunar um málið á vettvangi velferðarnefndar og fagna þessari miklu samstöðu um þessar breytingartillögur.