154. löggjafarþing — 129. fundur,  21. júní 2024.

Störf þingsins.

[10:39]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mér þótti athyglisvert þegar hæstv. forsætisráðherra kallaði störf þingsins hálftíma fyrir hálfvita og hafði þessi orð eftir ónefndum þingmanni. Þetta nefndi hann í umræðu um vantrauststillögu á hæstv. matvælaráðherra hér á þinginu í gær og átti þetta væntanlega að vera dæmi um illa nýttan tíma hér á þinginu. Því er hins vegar til að svara að þingmenn fá sjaldan tíma til að ræða það sem þeim býr í brjósti og þarna gefst þeim tækifæri til að ræða málefni sem annars komast ekki að hér á hinu háa Alþingi. Margir nýta þennan tíma, þessar tvær mínútur sem þeir fá, til þess að tala heim í kjördæmin sín og þannig hef ég oft nýtt tíma minn. Ég gæti t.d. eytt þessum tíma mínum hér í dag til að ræða flutning heilsugæslunnar í Laugarási upp á Flúðir sem stór hópur íbúa Bláskógabyggðar hefur lýst mikilli óánægju með. Ástæðan sem gefin var fyrir þessum flutningi var að það væri mikil þörf fyrir viðhald á húsnæðinu í Laugarási en samkvæmt grein sem oddviti Bláskógabyggðar sendi frá sér og birtist í Sunnlenska og á Vísi er sú ekki raunin. Svona atriði, sem skipta nærsamfélagið miklu máli, fá oft litla athygli hér á þinginu en þyrftu þess svo sannarlega. En af því að hæstv. forsætisráðherra talaði um illa nýttan tíma hér á þinginu þegar hann gerði lítið úr þeirri vantrauststillögu sem verið var að ræða þá mætti auðvitað ræða þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið hér undanfarna daga. Málin hafa ekki þokast áfram, ekki vegna þess að stjórnarandstaðan hafi verið að halda þinginu í gíslingu heldur vegna þess að ríkisstjórnin, vegna deilna sín á milli, hefur ekki komið neinu í verk. Ég held að hæstv. forsætisráðherra ætti að líta sér nær.